Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1964, Qupperneq 37

Heimilisblaðið - 01.01.1964, Qupperneq 37
Ef þér fallið fyrir þeirri freistingu að kaupa nokkrar sneiðar af laxi, þá prófið til tilbreytingar að grillsteikja þær. Það má að sjálfsögðu framreiða kartöflur með, en salat sem búið er til úr hráum svepp- um, tómatsneiðum og piparhrjngjum í olíu og ediki er miklu betra! Hafið þið nokkurn tíma prófað að setja kjötfars í epli? Skafið innan ur stór- um eplum og fyllið þau síðan með kjöt- farsi. Látið eplin í eldfast fat. Látið smjör yfir þau og hellið ofurlitlu vatni í fatið og steikið í miðalheitum ofni. Þetta er mjög bragðgott heitt, og kalt er það ágætt sem ofanálegg. Smáttskornar aprikósur eru mjög góð- ar í ávaxtaköku og hún heldur sér mjög lengi sem ný! Hárgreiðsla dætranna er stundum hálf- gert vandamál fyrir mæðurnar. Móðirin vill gjarnan að dæturnar séu snyrtilegar og fallega klipptar. En það getur stundum verið erfitt að fá 5—6 ára gamlan fjör- kálf til að skilja það, að það geti verið sérstaklega þýðingarmikið, og þess vegna verður maður að sjá um að hárgreiðsla barnsins sé eins einföld og mögulegt er. Það er fyrst í kringum 12 ára aldurinn að stúlkurnar vilja fara að halda sér til og HEIMILISBLAÐIÐ 37

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.