Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1964, Side 41

Heimilisblaðið - 01.01.1964, Side 41
Fyrsta snjóinn hafði tekið fljótt upp, en einn góð- an veðurdag var allt orðið hvítt aftur. „En hversu dásamlegt veður er nú,“ hrópar Kalli hrifinn, „nú skul- um við renna okkur á sleða.“ En þá muna þeir eftir því, að sleðinn er brotinn og ryksugan, sem þeir not- uðu til að renna sér á síðast, er í viðgerð. En þeir deyja ekki ráðalausir. Páfagaukurinn brunar eins og spútnik niður brekkuna á strokjárninu. Slangan hlykkjar sig og rennir sér á maganum — og stýrir sér með halanum. Skjaldbakan dregur fæturna inn i skel sína og nýtur ferðarinnar með storkinum, sem stendur í vatnsfati. Og birnirnir notast við kommóðuskúffu og nota kúst- inn fyrir stýri. Svona skemmta þau sér timum sam- an. Að lokum tendra þau bál og drekka heitt kakaó. „Ó, hve þetta hefur verið skemmtilegur dagur," segja þau hvert við annað. Kalli og Palli eiga von á heimsókn frá Suðurpólnum, þar sem Stórfínn frændi þeirra (auðvitað fjarskyldur) á heima. Það er tekið á móti honum á stöðinni og Palli ber töskurnar hans. Nú er haldið heim í hádegismat- inn og Stórfínn er hinn ánægðasti. „ís í miðdag og síld í ábæti. Það er einmitt uppáhaldsmatur minn, kæru frændur. Nú viljið þið ef til vill sýna mér gesta- herbergið," segir hann, „því ég er afar þreyttur eftir þessa löngu ferð.“ „Við höfum heilt gestahús handa þér,“ hrópa Kalli og Palli í kór. Þeir sýndu nú Stórfín- um stærsta ísskápinn, sem til var í nágrenninu. „Þakka ykkur fyrir, hér mun ég una mér rétt eins og ég væri heima hjá mér,“ sagði Stórfínn frændi. Bimimir litlu buðu síðan frænda sínum, Stórfínum, góða nótt.

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.