Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.12.1964, Qupperneq 8

Heimilisblaðið - 01.12.1964, Qupperneq 8
annað til að skilja það fullkomlega, hvernig þessu er háttað á milli okkar. Við erum hjálparlaus gagnvart ást okkar. Þú munt lika koma til með að taka örlögum þínum og reyna að komast af með þau á þann hátt, sem þér finnst bezt.“ Svo brosti hann aftur. Marta sat með hendur krepptar við brjóst sér, en lét þær nú falla máttlausar i kjöltuna. „Við höfum svo sem talað um þetta allt, Larry. En sá maður, sem ég ætla mér að giftast, hann skal vera hjá mér, stöðugt. Þannig er nú einu sinni hug- mynd mín um hjónaband. Ég vil hafa eig- inmanninn hjá mér. Hann á ekki að vera þúsundir míina í burtu.“ Rödd hennar var að því komin að bregðast henni. Hún kink- aði kolli í áttina að opnu dagblaðinu á borðinu. „Það á ekki að vera á þennan hátt sem þarna er lýst. Jafnvel þótt hann væri svona mikil hetja, þá. . . . “ „Hetja?“ Larry brosti enn einu sinni. „Hetjuna fengum við ekki að hafa heim með okkur. Það var einmitt það, sem ég kom til að segja þér, Marta. Mér fannst þú ættir að fá að vita það. En ég myndi ekki segja það við þig, ef ég elskaði þig ekki eins mikið og ég geri. En þeir hlutir eru til, sem eru meira virði en það, að standa alltaf hvort við annars hlið. Ég fyrir mitt leyti þekki enga fullkomna fyrir- mynd hjónabands. Ég veit aðeins, að ég er ástfanginn af þér, Marta. Það er það eina, er hefur nokkra þýðingu fyrir mig. Kannski lít ég á þetta allt frá röngum sjónarhól, ég veit það ekki, en allavega skaltu hlusta á mig núna, og svo geturðu sagt mér á eftir, hvað þií heldur.“ Hún sat með hendur í skauti sér og þorði ekki að líta á hann. Larry þorði held- ur ekki að horfa framan í hana. Hann sneri sér aftur í átt að glugganum og horfði á ljósin, sem blikuðu dauft úti í kvöldþokunni. Og í þessum stellingum sagði hann henni dálítið, sem blöðin greindu ekki frá, varðandi björgunarafrekið. Það var eins og hann hefði gleymt Mörtu gersam- lega.... „Skipstjórinn vissi, hver hann var. Annars hefði hann aldrei tekið við þess- um gamla náunga frá Shanghai. Þessi mað- ur leit út eins og hundruð annarra skip- brotsmanna lífsins, sem flækjast þar um á hverju strái, nema hvað hann hafði blárri augu en nokkur getur hugsað sér. Litur þeirra minnti á sjálft Kyrrahafið, þegar veður er sem fegurst. Hann trúði skipstjóranum fyrir því, að hann vildi komast heim. Hvað hann átti við með ,,heim“, það má hamingjan vita. En sjó- maður var hann, það vissi skipstjórinn. og endirinn varð sá, að hann kom um borð til okkar á Maliko daginn áður en við lögð- af stað. Kvöldið áður sá ég hann í fyrsta skipti. sem sagt daginn sem hann kom um borð- Hann var sérlega herðabreiður og með makka af snjóhvitu hári. Á Máliko er gam- all áttaviti aftur á, sem nota má í neyðar- tilfellum, og þar stóð hann. Hann var dauðadrukkinn, og áhöfnin hafði hann að fífli. Þetta var heldur ekki svo smáskrýti11 sjón að sjá. Skipið lá bundið við hafnarbakkann, eíl Bill Stormling - — eins og hann hét — hafð1 gripið um þetta gamla stýri og þóttist vera úti á rúmsjó. Máliko minnti hann sjálfsagt á gömlu, stóru seglskipin, sem hann þekkt1 frá yngri árum sínum. Það var hrollkalt í veðri og vindurin11 nístandi. Þarna stóð gamli maðurinn 1 fornu og snjáðu síðtreyjunni sinni, ber' höfðaður, og góndi upp í loftið. Hann hék víst hann væri úti á reginhafi í mann' skaðaveðri. Hann bar sig að eins og Þ^' farið gengi í bylgjum undir fótum hans> og með báða hnefa þéttkreppta um stýrif' húnana, enda þótt við lægjum rígskorðaðn við bryggjuna. Skipið bærðist að sjálf' sögðu ekki, en Bill gamli Stormling stýrðl því engu að síður með samanbitnum a' vörusvip á andliti. Það var ekki að furða’ þótt menn brostu.... 228 heimilisbla®15

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.