Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.12.1964, Side 16

Heimilisblaðið - 01.12.1964, Side 16
mætur á honum. Því að hún hafði kallað Albert kjána, en ekkert sagt til eða frá um Stephen; auk þess hafði hún tekið bónorði hans degi síðar, sem vel gat þýtt það, að hún hefði gefið Albert upp á bát- inn. Hvorugan þessara manna gat ég hugs- að mér fyrir tengdason.... nei, hvorugan þeirra! En hvort sem þetta var komið á alvar- legt stig eða ekki, þá voru mistökin mín eigin; ég hefði átt að koma í veg fyrir slíkt sem þetta í tæka tíð. Eg hafði haft mjög mikil áhrif á hana, og ég hefði átt að vera skarpskyggnari en ég hafði verið. Ég hefði átt að nota tækifærið til að grundvalla sanna hamingju hennar. Ö, mig auman, hversu mikill auli hafði ég ekki verið! — Og þó. . . . gat nokkur láð mér það, þótt ég hefði dekrað við barn eins og hana? Hver og einn hefði gert það í mínum spor- um. Hún var töfrandi, á allan hátt. . . .! Mér var þungt um hjartarætur. Hið áhyggjulausa, glaðværa líf, sem við höfð- um átt, var nú fyrir bí. Alvara lífsins var tekin við. Þar var fallinn skuggi á tilveru barnsins míns. Einhver myndi taka hana frá mér, fyrr eða síðar, og ég myndi verða skilinn einn eftir. Ég þorði ekki að hugsa þá hugsun til enda. Og sem frú Magny. . . . eða frú Beauvoisis. . . . myndi hún stofna sitt eigið heimili, annars staðar, án þess ég gæti fylgzt með þvi að nokkru ráði, hvernig henni liði. Og allt myndi þetta gerast vegna þess, að ég hafði ekki skilið, hvað var að brjótast um í huga hennar, heldur ímyndað mér að hún væri fullkom- lega hamingjusöm, úr því að hún fékk allt sem hún lét í ljós, að sig langaði til að fá. Ég varð að tala alvarlega við hana, leiða henni fyrir sjónir hvað var rangt við það, sem hún hafði gert. En daginn eftir forð- aðist hún mig. Ég sá hana aðeins andar- taksstund um morguninn, þegar hún kom til að kyssa mig á kinnina áður en hún fór að heiman. Hún ætlaði að fara út með frú Dubinau. Hvert ætluðu þær? Þessi kona var sennilega trúnaðarvinur hennar. .. . 236 en hvað ef ég spyrði nú frúna spjörunum úr? Væri það ekki sama og að svíkja NelHe . .. .og sjálfan mig um leið? Þetta var hræðilegur dagur. Þegar við höfðum lokið miðdegisverði, gekk Nellie til mín — eins og álfamær —. „Fóstri sæll! Viltu tala nánar við mtó . . . .um þetta frá í gær?“ „Já, það vil ég þó gjarnan, Nellie“, svai’- aði ég og reyndi að tala eins rólega og mel’ var unnt, svo að hún skyldi ekki taka eft11 því, hve yfirspenntur ég var; og þegar við vorum komin inn á vinnustofu mína, tóK ég að „tala alvarlega" við hana, klaufaleg' ur, heimskulegur og reikandi í hugsun. „Nellie“, mælti ég. „Ég hef hugsað m&' ið um þetta, sem þú sagðir mér frá í g#1’ og það hefur sært mig, að þú skuli1 hafa sýnt mér svona lítinn trúnað, bezta vini þínum og félaga. I stað þess að segla já þegar í stað við báðum þessum gifting' artilmælum, hefðirðu átt að koma til m^ En nóg um það. Hvað ætlarðu þér að gera' Ekki geturðu trúlofazt báðum.“ . Nellie hlustaði svipbrigðalaus, rétt eins og samvizka hennar væri í bezta lagi. svaraði brosandi: „Báðum, segirðu —■ el1 þeir gætu alveg eins verið orðnir þrín- Georg Bartin-Marville brennur i skinninu eftir að fá að tjá sig. . . .“ „Nei, heyrðu mig nú, Nellie", greip e^ fram í fyrir henni með andann á lofti, ,.Þel getur ekki verið alvara.“ Faðir Bartin-Marville bar ábyrgðina gjaldþroti föður hennar, en ég var sá elU^ sem vissi um það í öllum smáatriðum- & lagði áherzlu á orð mín: „Þetta getm’ ekki sagt!“ ^ • „Æstu þig ekki svona upp, elsku fóg minn. Málið er alls ekki eins flókið og P heldur. Ég kæri mig nefnilega ekkert u ^ Albert Magny. Þú mátt fara til hans morgun og segja honum það.“ ^ „Það er þó skemmtileg sendiför! Hva viltu, að ég segi við hann?“ heimilisblap1^

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.