Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.12.1964, Blaðsíða 26

Heimilisblaðið - 01.12.1964, Blaðsíða 26
skipalistann. Hann vissi, að Andromeda lét frá landi í dag — og í ljós kom, að það lagði af stað klukkan átján. Það var mjög heppilegt. Hann greip símann og fékk sam- band við ferðaskrifstofuna. Tia kom inn aftur á meðan hann talaði í símann, og af símtalinu skildist henni, að vandinn varðandi vegabréf hennar var leystur. Það myndi enginn spyrja hana um vegabréf. Hann var svo ríkur. Hann hlaut að vera alveg brjálæðislega ríkur. Verðið sem hann nefndi á farmiðunum, gerði hana næstum dauðskelfda. Henni fannst hún vera eins og leikfang í höndum hans, en jafnframt fann hún til öryggis. Það var ólíkt þvi, hvernig henni hafði liðið við hlið Róberts. Martin Grove var maður, sem jafnan myndi standa við lof- orð sín, enda þótt hann væri á hinn bóg- inn ekki fljótur að gefa loforð. Þegar hann hafði lagt tólið á, sagði hann: „Ég gaf bílstjóranum mínum frí, svo að hann geti heimsótt fjölskylduna sína. En við tökum hann með okkur i dag, því að við þurfum að fara í svo marg- ar verzlanir." „Þú færð allt eins og þú vilt. Það er allt leikur fyrir þig.“ „Nei,“ svaraði hann, „þetta hefur verið fjári erfitt, og — ja, hvað um það, nú hef ég fengið þig til að gera mér lífið leitt . . . .og ég get ekki notið hvíldarinnar." „Þú nýtur aldrei neinnar hvíldar," sagði hún lágt. „Þú veizt ekkert um mig, væna mín.“ Hann tók undir handlegg hennar. „Ekkert. Komum nú. Þú hefur fallega fætur, en mér lízt ekkert á skóna þína.“ „Rinna Gard myndi aldrei setja upp svona skó.“ Henni var óðara Ijóst, að hún hafði sagt eitthvað, sem hún hefði ekki átt að segja. „Mátti ég ekki segja þetta?“ Hann svaraði hvasst og stutt: „Ég þoli ekki þessa smámunalegu afbrýðisemi kvenna hverrar í garð hinnar.“ ,,Ó“ sagði hún, „var það ekki annað? En ég er ekkert afbrýðisöm út í hana lengur. Mér finnst — mér finnst hún meg1 fá Róbert.“ „Elskan mín stutta,“ sagði hann. „Eins og ég hef áður sagt: Láttu eins og ekkert hafi gerzt. Láttu hið liðna vera gleymt- Viltu gera það?“ „Fyrirgefðu mér, Martin.“ Þetta var í fyrsta skipti, sem hún ávarp' aði hann með fornafni. Þau tóku eftir Þv’ bæði samstundis, brostu hvort framan 1 annað og gengu út í lyftuna. Fyrir utan hótelið stóð bíllinn hans með gráklæddum bílstjóra undir stýri. Dyravörðurinn opnað1 fyrir þau bílhurðina og lokaði á eftir þeim’ Hún hallaði sér aftur á bak við hægri hlið Martins og fannst hún vera fátæk í þess' um fullkomna bíl. Skórnir hennar voru beinlínis hræðilegir. Þau námu staðar fyrir utan ferðaskrif' stofuna, síðan fyrir utan skrifstofu lög' fræðingsins, og hún sat kyrr í bilnum 3 meðan Martin fór inn. Síðan fóru ÞaU úr einni verzluninni í aðra. Martin borg' aði 8000 krónur fyrir loðskinnskápu 1000 krónur fyrir silfurref, auk risaUpP' hæða fyrir marga kjóla og sitthvað anU' að, sem hún valdi sér. Hann notaði ekk1 tiu þúsund, heldur tuttugu þúsund krónur- Og áður en þau snæddu hádegisverðinm fékk hún leiftursteinshring á höndina 1 stað smaragðsins, og í framréttri hend1 Martins lá sígarettuveski með ekta perN' skrauti. En ekki lét hann hana fá grmn' an eyri í reiðufé; ekki svo mikið, að hu11 gæti farið í símaklefa, því síður svo hun gæti keypt sér aftur farmiða til Genne' hvols, ef hún skyldi skyndilega sjá sig ulT| hönd. Ekki heldur svo mikið, að hún gmT1 keypt sér næturgistingu á ódýru hóteh- Hann vildi ekki eiga neitt á hættu. HuU mátti ekki breyta ákvörðun sinni og fara að grufla út í bakþanka. Andromeda sigl^1 ekki úr höfn fyrr en klukkan átján. 246 HEIMILISBLAÐlP

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.