Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.12.1964, Side 34

Heimilisblaðið - 01.12.1964, Side 34
ar í gang. Síðan var flautað, og gólfið und- ir fótum hennar tók að vagga. „Við erum komin af stað!“ hugsaði hún og fann aftur fyrir andþrengslistilfinningu. Það var eitt- hvað innra með henni, sem í senn var löng- un og ótti. Hún flýtti sér út eftir teppa- lögðum ganginum, gegn um reyksalinn og út á þilfarið. Þar stóð Martin og hallaðist fram á borðstokkinn. Hann skynjaði nálægð hennar án þess að þurfa að snúa sér við. „Ert það þú?“ mælti hann blíðlega. Hún gekk fast að honum, og hann stakk hendinni undir handlegg hennar og hélt henni þétt að sér. „Við verð- um að sjá þetta sameiginlega,“ sagði hann. „Annars er ég vanur að vera í leiðu skapi, þegar ég sigli héðan, — en að sjálfsögðu ekki í þetta sinn.“ „Hvers vegna ertu vanur að vera í leiðu skapi, þegar þú heldur í átt til þinnar dá- samlegu eyjar?“ „Vegna þess að ég hef horfið frá svo mörgu dásamlegu hér.“ Hann var enn að hugsa um Rinnu, þar sem hann stóð hér við hlið Tíu og þrýsti henn að sér, en skipið fjarlægðist hafnar- bakkann. Nú vissi Rinna hvað hann hafði gert, og hún útskýrði það áreiðanlega á sinn eigin hátt. Sem skynsamlegan hlut — já, hennar vegna og Róberts. Hún myndi ekki eitt andartak finna til löngunar til þess að segja Róbert neitt. Hún myndi aldrei segja nokkrum manni það, sem hún vissi, að var hinn raunveru- legi tilgangur Martins Groves. En við sjálfa sig myndi hún segja, sigri hrósandi: „Það var mín vegna, sem hann gerði þetta! Hann fórnaði sjáifum sér — fullkomlega — mín vegna!“ Þetta var sú tegund af leyndarmáli, sem konur geyma djúpt í hjarta sínu. Já, hann hafði gefið Rinnu stórkostlega gjöf — hann hafði fórnað henni einkalifi sínu í framtíðinni, einmitt því, sem menn setja ofar öllu öðru, hversu svo sem þeir annars kunna að misnota það og lítilsmeta öðrum þræði. Það var engu líkara en öldugjálfrið við skipskinnunginn hvíslaði að honum við skin lækkandi sólar röddum Dahliu og Rinnu, þar sem þær í ákefð reyndu að móta skoðanir vina sinna og kunningja: „Við gerðum svo sannarlega allt til þess, að hún gæti unað sér hér eins og heima hjá sér, en góða bezta — hún var æfin- týradrós, æfintýrakvendi af versta tagi- Maður skilur það ekki, að Róbert skyldi ekki sjá í gegnum hana. En hann hefui’ nú alitaf verið svolítið barnalegur og hald- ið allt hið bezta um annað fólk, er það ekki?“ Og nágrannarnir myndu kinka kolli til samþykkis og ekki einu sinni detta í hug að brosa með sjálfum sér að einfeldni og trúgirni Róberts. Æfintýradrós? Martin stóð þögull við hlið Tíu — lengi> mjög lengi, unz skipið hafði siglt út úr höfninni og lóssbátarnir voru snúnir til lands. I upphafi höfðu þau átt eitthvað sameiginlegt í þögn sinni, en það hvarf um leið og hann tók að hugsa um RinnU og ímynda sér þá baráttu, sem hún ásamt Dahiiu — hlaut að taka upp gegn honum, framúrskarandi heiðarlega bar- áttu, grundvailaða á fyrirlitningu, þögn og lítilsvirðingu á því sem þó var aðalatriði málsins; baráttu sem ekki hvikaði hárs- breidd frá því, sem hún miðaði að. En hvað hafði hann svo fengið í aðra hönd? — Æfintýradrós. Því að æfintýrakona var hún — jafnvel þótt afstaða hennar hefði mótazt af von- brigðunum með Róbert Kelmer. En frammi fyrir honum, Martin Grove, myndi hún ekki geta skotið sér á bak við nein láta- læti. Hún hafði gengizt inn á einfaldan og krókalausan viðskiptasamning — það var víst það skásta, sem hægt var að kalla það. Hún myndi verða eiginkona hans. Fang1 hans? Kannski. En búrið yrði allavega mjög skrautlega úr garði gert. 254 HEIMILISBLAÐ15

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.