Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1965, Page 18

Heimilisblaðið - 01.01.1965, Page 18
gat hún átt við með þessu? Allt í einu tók hún eftir dálitlu, sem kom henni til að kippast við. Augun í hinu fagra og vel snyrta andliti Liönu, þau voru dauð. Það var tjáningarlaus gríma, sem horfði á hana. Sálin — hin eiginlega mannvera — hún fyrirfannst þar ekki. ,,En þú ert hamingjusöm, er það ekki, Catherine?" spurði Liane. Catherine leit undan. „Hamingjusöm,“ endurtók hún lágt, eins og hún væri að tala við sjálfa sig. ,,Jú, ég er mjög hamingjusöm.“ Báðar urðu þögular. Hvorug hreyfði sig eða sagði orð. Síðan laut Liane fram í sæti sínu. „Hvers vegna spyrðu mig ekki, hvað ég vilji þér núna?“ sagði hún. Catherine leit á hana. „Ég veit ekki, hvað þú getur viljað mér,“ svaraði hún blíðlega. „Ég hef ekkert til að gefa þér lengur. Áður þegar þú komst, þá vildirðu Simon, og þú fékkst hann. Svo komstu og vildir frelsi þitt; það veitti ég þér líka. Ég er fátæk kona, Liane, þreytt af vinnu, ekki ung lengur, stöðugt með áhyggjur af börnunum mínum — framtíð þeirra — og af heilsu mannsins míns; aldrei örugg vegna þess, sem morgundagurinn kann að bera í skauti sér, — hvað þá kom- andi ár. Hvað get ég nú haft, sem þú óskar eftir?“ „Hamingjuna, Catherine," svaraði Liane lágt. Catherine leit rólega á hana. Hún sagði ekkert við þessu. Það var Liane, sem rauf þögnina og tók að tala bæði hratt og af ákefð: „Þú varst vön að segja, að ég fengi alltaf það, sem ég óskaði mér. Já, það var satt, ég fékk allt sem ég óskaði mér. Hvers virði er lífið, ef maður fær ekki það, sem mann langar til? Lífið er svo óskiljanlega stutt — ekki nema örskotsstund, brot af eilífðinni, og þegar það er búið, hvað þá? Kannski eitthvað, kannski hreint ekki neitt — um alla eilífð. Ég var fastákveðin í þvi, að ég skyldi fá eins mikið út úr þessu litla broti af eilífðinni eins og í mínu valdi stæði. Og ég hafði góða aðstöðu til að fá það. Fegurð, gáfur, vald til að gera það 18 sem mig lysti — eða hefði það ekki verið heimskulegt af mér að nota ekki allt þetta? Ég tók Simon frá þér og giftist honum, vegna þess ég þráði ást. Ég eyðilagði framaferil hans og giftist Rudy, því að ég vildi fá virðulegan frúartitil. Og þessu næst óskaði ég mér auðæfa; þá hitti ég Blare- field. Ég óskaði eftir að giftast Blarefield, og það var ástæðan til þess, að Rudy sviph sig lífinu.“ „Liane!“ hrópaði Catherine og greip nn andann á lofti. „Þetta meinarðu þó ekki- Var það ekki slys, þegar maðurinn þm11 hrapaði?11 „Rudy var einhver snjallasti fjallgönguy maður á öllu Englandi. Það var alls ekki slys, að hann hrapaði. Allir héldu það, en ég vissi betur. Ég vissi, að honum var ljóst, að ég vildi giftast Blarefield. Ég fékk það> sem ég vildi. Og þá óskaði ég mér næst meiri spennings og annarra elskhuga, þetta allt fékk ég. Þangað til eitt kvöld, að ég fór að líta yfir líf mitt í heild, þá sá ég það allt í nýju ljósi. Ég sá, a^ ég hafði öðlazt allt það. sem ég hafði óskað mér af mínu litla broti eilífðarinnar og a^ það var allt saman einskisvirði — ekkert- Ég hafði í rauninni ekkert fengið. ÞesS vegna er ég komin til þín. Það er undaf' legt, að ég skuli alltaf koma til þín, er Þa^ ekki, Catherine?“ Catherine hélt áfram að horfa á hana’ róleg og þögul. En það var eins og Þ°^a fyrir augum hennar, og hún sagði ekk> neitt. „Hvernig get ég öðlazt hamingjuna, Caí' herine?“ spurði Liana lágt. Það hljómael næstum eins og bæn. Catherine svaraði lágt og hægt: held, Liane, að til þess að öðlast hamingl una, verðir þú sjálf að vinna fyrir hennl- Berjast fyrir henni. Þjást fyrir hana.“ Hún stóð á fætur, gekk hægt til Lialie og lagði höndina á öxl hennar: „Sú var tíðin, Liane, að ég hataði Þ1^ En nú aumkast ég yfir þig, af öllu m111 hjarta.“ Það var Simon, sem nokkrum dögnn' síðar las um sjálfsmorð Lady Blarefiel s- HEIMILISBLAnl£)

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.