Heimilisblaðið - 01.01.1965, Qupperneq 20
KOFI TÓMASAR FRÆNDA
EFTIR HARRIET BEECHER STOVE,
ENDURSÖGÐ í MYNDUM
72. — Játaðu, að þú hafir hjálpað Kassy og
Emmu til að flýja! — Ekkert svar. — Veiztu, að
það er á mínu valdi að refsa þér, og að ég ætla
mér nú að dæla úr þér blóðinu, dropa eftir dropa!
•—• — Síðan var Tómas seldur í hendur yfirþræl-
unum, sem sveifluðu bareflunum yfir honum,
þangað til hann lá meðvitundarlaus.
73. — I húsi Shelbys var húsbóndinn látinn, en
ekkjan og Georg sonur hennar höíðu reynzt heiti
sínu trú og útvegað næga peninga til að leysa
Tómas úr þrældómi. Georg heppnaðist að kom-
ast að því, að Legres hafði keypt Tómas síðastur
manna, og nú leitaði hann hann uppi til að semja
við hann um lausnargjaldið. Legres sagði,
Tómas hefði átt þátt í flótta tveggja kvenþræl3,
og þess vegna hefði honum verið refsað harðlegö;
74. — Georg fann hann nær dauða en lífi 1
daunillum hálminum í kofanum hans. Þegar hanh
heyrði rödd Georges, raknaði hann þó við og þakk-
aði honum veikri röddu fyrir að hafa ekki gleynit
sér. Hann bað fyrir hinztu kveðjur til konu sinnar
og barna og loks bað hann um, að Georg l®*1
engan vita, hvar hann hefði fundið hann. Og fuh'
viss um líf eftir þetta líf lokaði Tómas augunum
í hinzta sinni.
75. — Þegar Georg sneri sér frá beði hins látna,
stóð Legres í kofadyrunum. Georg spurði, hvað
hann ætti nú að gefa mikið fyrir Tómas, en Le-
gres svaraði afundinn, að hann seldi ekki lík.
Georg hét því, að morð þetta skyldi kært til
yfirvaldanna, en sú hótun hafði engin áhrif á
Legres, sem staðhæfði, að engin vitni hefðu vevið
að verknaðinum —■ og vitnisburður svartra manna
væri gagnslaus. Þá var unga manninum nóg boð1^!
og með einu hnefahöggi sló hann illmennið
gólt'ið. gíl
76. ■—■ Lík Tómasar var nú borið inn í va"g
Georges, og í fylgd tveggja þræla var farið m
það út að stóru tré, þar sem þvi var búin 8r° !
Legres var risinn á fætur, og vandræðaleg
fylgdist hann með því, sem fram fór.
20
heimilisbla£>i£)