Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1965, Qupperneq 24

Heimilisblaðið - 01.01.1965, Qupperneq 24
SVIKIN eftir Maja Edwinson Hún lá kyrr og lét sér detta í hug að leika eitthvert bragð, en sjálfri sér til skap- raunar hafnaði hún öllu, sem henni kom til hugar. Henni kom jafnvel til hugar að banka sjálf á dyrnar hjá Martin. .. . ,,Af- sakaðu, Martin.... en ég get ekki sofnað. Þú átt víst ekki asperín?" En hún var dauðhrædd um, að hann myndi þá kannski ofur auðveldlega leita uppi asperín handa henni, afhenda henni það og loka síðan dyrunum aftur af á milli þeirra. Það fannst henni ekki, að hún myndi geta afborið. En til einhvers bragðs varð hún að taka. Hún gat ekki hugsað sér, að þjónninn, káetuþernan eða bílstjóri Martins tækju skyndilega upp á því að virða hana for- vitnislega fyrir sér með sínum lífsreyndu og útsmognu augum. Hún óskaði ekki eftir því að vera lengur skotspónn fyrir meira eða minna dularfullar getgátur. Hún vildi beiniinis, að allir álit.u sig frú Martin Grove, sem að öllu leyti ætti örugga tilveru í skjóli síns ágæta eiginmanns. Þess vegna var það eitt, sem hún ákvað að gera á hverri nóttu eftirleiðis, eða svo gott sem hverja nótt: Hún ætlaði sér að sofa hálfa nóttina í rúminu til hliðar við sitt eigið rúm, en hinn helmingurinn í sínu eigin rúmi. Rúmið til hliðar skyldi svo sannarlega líta út eins og það hefði verið notað, og lökin rækilega þvæld. Og á öskubakkanum til hliðar við það skyldu iiggja sígarettustubbar, sem enginn vara- litur sæist á. Hún lagðist þegar fyrir í rúminu, sem Martin hefði átt að hvíla í, og sofnaði óðara. Þegar komið var fram undir morg- un, vaknaði hún, skreið yfir í sitt eigið rúm og sofnaði. Þetta var reyndar viss 24 auðmýking, en hins vegar bráðnauðsynleS ráðstöfun, ef hún átti að halda virðing11 sinni sem brúður. Um sjöleytið heyrði hún Martin við bílstjórann sinn, og skömmu síðai heyrði hún glamur í tebollum. Tuttug11 mínútum síðar heyrði hún Martin fal’a fram á gang og segja um leið: ,,Ég ætla að skreppa upp í íþróttasalinn, og svo tek e» mér sund í lauginni áður en aðrir fara að hópást að.“ Hún hlustaði og hlustaði. En hann vai farinn. Hún stökk út úr rúminu og í sig kjark til að opna dyrnar og gægjaS inn fyrir. Hinar dyrnar, sem iágu fram a ganginn, stóðu galopnar og höfðu veÞ kræktar fastar. Hún iæddist inn og snert1 við hárburstanum hans og öðrum snyrt1' áhöldum. Nei, þetta var fyrir neðan allal hellur; hún gat ekki verið þekkt fyrir slík‘ Hún flýtti sér aftur yfir í rúmið sitt, le dyrnar ekki falla alveg að stöfum, eíl hringdi í þernuna. — Bezt var að hal vitni. ... ^ „Ó. fröken, gæti ég ekki fengið teboHa■ Stofustúlkan mín er ekki komin ennþá- „Jú, sjálfsagt, frú.“ „Maðurinn minn er farinn upp í íþrótla salinn.“ „Já, herra Grove er mjög framtakssa111 ur maður. Við könnumst vel við hann. Tia hallaðist aftur á púðastaflann; hafði bætt við stærsta svæflinum úr m inu við hliðina. „Hann er alltaf á ferð,“ svaraði hún og brosti. Og nú K° ^ stofustúlkan hennar á vettvang °& ^ einnig hið velkta rúm og opnar dyrn milli vistarveranna. « „Ó, lokið þessum dyrum þarna, Pe' ’ HEIMILISBLAe,IÍ)

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.