Heimilisblaðið - 01.07.1965, Síða 10
Flugvél getur haft sterkasta hreyfil í heimi
og beztu flugaflfræðilegu byggingu, en það
allt væri gagnslaust, ef ekki kæmi til viss
óskiljanlegur kraftur. Ef flugvél á að ná
tilgangi sínum, verður að stjórna henni
og stýra. Það gerum vér með hjálp átta-
vita.
Vér getum yfirieitt ekki skilið með
skilningarvitum vorum það afl, sem hefur
áhrif á áttavita. Vér getum ekki séð, heyrt,
fundið, smakkað eða fundið lykt af því.
En vér vitum, að það er til, af því að vér
getum séð áhrif þess. Vér getum horft á
tæki í stjórnklefanum, og vér getum séð,
að áttavitinn bendir í ákveðna átt. Og vér
erum sannfærðir um, að þetta dularfulla
afl muni halda áfram að hafa áhrif á nál
áttavitans á sama, óumbreytilega hátt. —
Vér flugmenn höfum allir hætt lífi voru
í trausti til þess, að áttavitinn vísaði rétt
og leiddi oss að takmarki voru.
Og það sama má segja um kristnu trúna,
sem stjórnar lífi voru. Ef vér látum hana
benda oss á áttina, þurfum vér ekki að
brjóta heilann um, hvers vegna vér get-
um ekki skilið hana með skilningarvitum
vorum. Vér sjáum, hvaða árangri hinn
trúarlegi máttur kemur til leiðar í voru
eigin iífi og annarra manna. Og þess vegna
vitum vér, að hann er til.
142
Fíllinn Birka í Hagenbeck-
dýragarðinum í Hamborg vinn-
ur fyrir mat sínum, því að
hann er látinn bera það sem
þungt er qg þarf að fjarlægja,
t. d. tré, sem hafa verið felld
o. fl.
Sennilega reynir róðraríþrótt-
in jafnast á allan líkamann,
enda er hún erfið og krefst
mikillar þjálfunar. Stúlkan var
stýrimaður Oxfordstúdenta i
keppni við Cambridgestúdenta
nú í vor.
Drottning Persíu Farah Diba
heimsótti Lundúnaborg í vor.
Hér sést hún meðal enskra
skólabarna, sem voru að koma
úr fimleikatírna.
Hin fagra Ratna Sari Dervi,
sem er fædd i Japen, er nr. 3
í röðinni af fjórum konum Su-
karno forseta Indónesíu. Ný-
lega var hún á ferð í Lund-
únum til að heimsækja vin-
konu, sem var að gifta sig.