Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.07.1965, Síða 22

Heimilisblaðið - 01.07.1965, Síða 22
í húsdýraverzlun í Lundúnum á þessi 35 ára gamli páfa- gaukur heima. Hann er svo skynsamur að óhætt er að lofa honum að vera úti á gang- stéttinni, og af því hefur hann kynnzt þeim, sem daglega fara framhjá, þar á meðal þessari stúlku, sem oft stanz- ar til að tala við hann stund- arkorn. Fyrir nokkru fannst 50 kg sprengja í Lundúnum, en sem betur fór, var hún orðin óvirk. — Á myndinni sést hermaður fjarlægja hana. Þegar hlýnar í veðri og úti- lífið er mest, er gott að eiga hjálpfúsa. leiksystur. Mikla athygli hafa réttarhöld- in gegn Ginu Lollobrigidu og meðleikara hennar í myndinni „Brúðurnar“ vakið, en hún hef- ur gefið þá skýringu að hún hafi verið í aðþröngum föt- um með hörundslit. KlaÆaverzlun í Köln auglýsir á þennan hátt: „Sá, sem þessar buxur eru mátulegar, fær þær gefins.“ Stúlkan virð- ist vera hrifin af tilboðinu, en hún mun verða að kaupa sér buxur, því að mittismál buxn- anna er 2 metrar. í þorpinu Ramsen i Sviss er ekki gefið út neitt blað, það hefur því fallið í hlutverk lög- regluþjónsins, Franz Schnei- der, að taka sér bjöllu í hönd og ganga um göturnar og hrópa upp það, sem hefur þurft að tilkynna íbúunum. Hann erfði stöðuna eftir föður sinn.

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.