Heimilisblaðið - 01.07.1965, Page 39
HÁRH), okkar mesta prýði.
Það eru gömul sannindi, að það er mjög
ftiikið undir hárinu komið, hvort við lítum
val út og erum snyrtiiegar. Ef hárið lafir
slétt og feitt og druslulega niður á axlirnar
a manni, þá finnst okkur við sjálfar vera
Þreyttar og slappar, og allar konur þekkja
Þau áhrif, sem það hefur á okkur, þegar
við vitum að hárið fer vel og er eins og
Það á að vera. Ef húðin og hárið á að vera
fallegt, verðum við að gæta þess að fá
retta fæðu með nægum vítamínum, eink-
Um og sér í lagi B-vítamínum, steinefnum,
kjöti, fiski, osti og eggjum og þar að auki
kög af hreinu lofti. Þar að auki þarf auð-
Vítað að halda hárinu vel hreinu og bursta
það vel (en alls ekki með nylonbursta).
Það
er einnig mjög gott að nudda hár-
svörðinn vel.
. EF hárið er feitt: Þvoið það þá oft upp
Ur hárþvottalegi, sem er sérstaklega gerð-
Ur tyrir feitt hár, og látið ofurlítið af sít-
^puusafa eða ediki í síðasta skolvatnið.
Hálfþurrkið hárið og nuddið nokkrum
r°pum af Kölnarvatni í hársvörðinn áður
en setjið rúllur í það.
EP hárið er mjög þurrt: Áður en þér
Pvoig yður um höfuðið, þá hitið þið hár-
svörðinn þannig, að þið vindið handklæði
uPp í mjög heitu vatni og vefjið um höf-
. Skiptið síðan hárinu í 5 hluta: einn
hverri hlið, einn í hnakkanum og 2 á
virfiinum. Nuddið olivenolíu með baðm-
arhnoðra í hvern hluta hársins og látið
1Una vera í hárinu í tvo klukkutíma áður
-------------
en þið þvoið hárið upp úr hárþvottalegi,
sem gerður er fyrir þurrt hár. Notið gjarna
pylsner, þegar þið setjið rúllur í hárið.
EF hárið er mjög fínt: Veljið þá stutta
og einfalda hárgreiðslu, sem þér getið sjálf-
ar ráðið við vegna þess að fínt hár þarfn-
ast mikillar umhirðu. Fáið ykkur perma-
nent, það auðveldar hárgreiðsluna.
EF hárið er gróft: Það er yfirleitt mjög
fallegt að láta klippa þetta hár stutt og í
styttur. Það er yfirleitt auðvelt að eiga
við það og óþarfi að setja í það permanent.
Gætið þess að bursta það vel á hverjum
degi.
EF hárið er lint: Eruð þið vissar um að
þið borðið rétta fæðu? Það er ekki ósenni-
legt að það myndi hjálpa ykkur að borða
B-vítamín. Það gæti einnig verið gott að
þvo það upp úr eggjahárþvottalegi.
STORMUR Á MATTERHORN
Framh. af bls. llfl.
hvað á. Hann er á leiðinni áfram niður
fjallið."
„Það var undarlegt —“
Hans gamli Sturmer, sem stóð nærri,
hristist allur af hlátri.
„Ég held, að sá herra sé farinn niður
eftir til þess að kaupa kerti,“ sagði hann,
„til að brenna þeim frammi fyrir Maríu
mey, í þakkarskyni gagnvart einum, sem
bjargaði honum úr miklum háska.“
Varir Pálu titruðu og angistarsvipur
kom í augu hennar. Svo leit hún upp til
manns síns og brosti vandræðalega.
„Elsku, elsku vinur minn,“ hvíslaði hún,
„ég er fegin, að hann er farinn. Ég — sé
svo eftir — öllu þessu. Þegar ég lá þarna
uppi í snjónum, rann það upp fyrir mér,
að þú varst sá eini, sem hefur nokkurt
gildi fyrir mig. Án þín væri lífið og heim-
urinn ekki neitt.“
ilisblaðið
171