Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1970, Síða 4

Heimilisblaðið - 01.01.1970, Síða 4
væri í raun og veru lijá spætunni okkar, og við reyndum að komast að því kvöld eitt, þeg- ar 18 stiga frost var. Yið notuðum hitaele- ment með tveim löngum elektróðum, sem við stungum á'kaflega varlega inn um hreiður- opið, svo að þær snertu fuglinn lauslega án þess að þekja hann. Ytri f jaðrirnar voru kald- ar, en rétt undir fjaðrabúningnum sýndi hita- mælirinn ekki minna en 40 gráður. Margir fuglar hlýja sér á nóttinni í skjóli fjölskyldunnar. Sumar lyngliænur safnast til dæmis saman á kvöldin og troða laut niður í snjóinn, og síðan leggjast þær í hring, hlið við hlið, með stélið inn að miðju og hausinn fram, til þess að ránfíknir óvinir geti ekki komið þeim að óvörum. Þegar þær liggja þannig þétt hver upp að annarri, minnka þær samanlagt yfirborð sitt út að köldu umhverf- inu og halda hitanum innan fjölskyldunnar. A veturna virðast hérarnir hoppa um á berum fótunum í ís og snjó, en í raun og veru eru þeir í „stígvélum". Tærnar á héralopp- unni eru þaktar löngum, seigum fjaðurmögn- uðum hárum, sem valda því, að dýrið svífur allmörgum millimetrum fyrir ofan jörðina á gangþófum úr hárum og 'lofti. Við fundum einstök spor í snjónum — tár hér og þar — en á langflestum stöðum voru hýjaðar útlín- ur liins loðna einangrunarpúða. En hvað um stóru eyrun á hérunum ? Eru þau ekki fjarri öllum reglum um hita- sparnaðar útbúnað? Jú, að vísu, en samt sem áður laga eyrun sig eftir hinum ágætu lög- málum náttúrunnar. Ameríski hérinn hefur geysistór eyru, en hérarnir, sem lifa í hinu svalara Oregon, hafa þó helmingi minni eyru en hérarnir í liinu hlýja Arizona. Og á heimskautahéranum, sem á heima á næð- ingSsömum freðmýrum, eru eyrun mjög lítil, rétt aðeins nógu stór til þess að nema hljóðið frá klóm heimskautarefsins. Hjá mörgum öðrum dýra- og fuglategund- um er því þannig farið, að kuldinn gerir skott þeirra eða stél minna, háls þeirra og limi styttri og digrari. Yfirleitt má segja, að því norðar sem dýr lifir, því styttri verða limir þess. Sýnt hefur verið fram á það með til- raunum, að dýrategund getur breytzt að þessu leyti í einni einustu kynslóð. Tilrauna- mús, sem óx upp í 32 stiga hita, fékk langan, mjóan hala, langa fótleggi og grannan líkama, en aðrar mýs af sama kyni fengu, við 16 stiga hita, styttri hala og urðu þrekvaxnari. Yfirleitt er því svo farið, að dýr með lieitu blóði, sem lifa á norðurslóðum, eru nær því ávallt þyngri og sterkbyggðari en dýr sömu tegundar, sem búa sunnar. Birnirnir eru gott dæmi. Tveir stærstu meðlimir fjölskyldunnar, ísbjörninn og briini Alaskabjörninn, lifa að- eins á norðlæga heimsskautasvæðinu, en með- alstóri svarti björninn heldur sig að tempr- aða beltinu. Þessi regla á einnig við um menn. Eskimóar hafa styttri fótleggi og lengri búk og eru þrekvaxnari en fólk frá suðlægari slóðum. Og það er einnig í góðu samræmi AÚð haganleika náttúrunnar, því að því þyngri og þéttari sem 'líkami er, því minna verður hitatapið til umhverfisins. En þó að dýrin á norðurhvelinu séu þung og þrekvaxin, verða þau samt að hafa sterka blóðrás, ti'l þess að komast af í kuldanum, og þess vegna er hjarta þeirra venjulega einnig stærra og kraftmeira. Náttúran notar einnig litinn til varnar gegn kuldanum. Margar norrænar dýra- og fugla- tegundir klæðast hvítu á veturna —• það á til dæmis við um hreysiketti, hera og rjúpu. Aður var kaldið, að tilgangurinn með hvíta feldinum eða fjaðrahamnum væri aðeins sá að líkjast umhverfinu sér til varnar, en nú er talið, að þau gegni miki'lvægu hlutverki I hitatempruninni. Eins og kunnugt er endur- kastar hvíti liturinn geislum sólarinnar, og því hefði mátt halda, að svart væri áhrifa- meira. En sólarhitinn, sem feldur dýranna getur sogið til sín í heimskautahéruðunum, er mjög lítill. Það er langtum mikilvægara, að dýrið geti varðveitt innri hita sinn, og þar kemur hvíti feldurinn eða fjaðraham- urinn að notum. Hann endurkastar nefnilega einnig hitanum, sem kemur innan frá og verð- ur á þann hátt bezta einangrun í vetrarkulda. Hermönnum, sem þjálfaðir eru til hernað- ar í fjallahéruðum eða í heimsskautahéruð- um, er sagt að fara að eins og villikanínurnar, grafa sig í fönn, þegar þeir þurfa að sofa úti á víðavangi. Mér varð ljóst, að það var gott ráð, þegar ég sá einu sinni kanínuholu í snjó- skafli. Talsvert djúp hola var þar, sem kan- ínan hafði troðið sér inn í skaflinn. Þar hafði hún setið og látið fenna yfir sig. í skjóli fyrir vinndinum liafði hún hitað holuna upp með líkamshita sínum. Jafnnoatlegt verður hjá hermanninum, ef hann grefur sig í fönnina og er þar í Skjóli fyrir vindinum. Holan á að- 4 HEIMILISBLAÐIÐ

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.