Heimilisblaðið - 01.01.1970, Page 35
Við. sem vinnum eldhússtörfin
Mesti heimboða- og veizlutími ársins fer
nú í hönd. Jólin eru liðin og margir orðnir
leiðir á kökuáti. Bn hvað skai þá til bragðs
taka? Eithtvað gott langar mann ti'l að gefa
vinum og kunningjum. Hér eru nokkrar
skemnitilegar og óVenjulegar uppskriftir.
Pyrst er einfaldur réttur frá Wales. Þenn-
an einfalda og góða rétt er hægt að búa til
með ýnisum tilbreytingum. Bins og réttur-
inn er hér er mjög fljótlegt að útbúa hann,
og þess vegna auðvalt að falla fyrir freist-
ingunni á laugardags'kvöldi. Uppskriftin
handa fjórum er:
200 gr. mildur ostur, sem skorinn er x
ferninga,
1 tsk. gult sinnepsduft,
V± tsk. nýmalaður pipar,
V2 tsk. paprika,
V2 tsk. salt,
ca 1 dl. pilsner,
4 þykkar sneiðar af fransbrauði,
8 sneiðar af bacon,
steinselja.
Blandið ostateningum, kryddi og pilsner í
lítinn pott. Látið yfir hægan hita þangað til
osturinn er orðinn nijög linur. Ristið á með-
an fransbrauðssneiðarnar í brauðristinni og
baconið á pönnu. Látið ristaða brauðið á
heitt fat 0g ausið ostamassanum strax yfir.
Látið baconsneiðarnar í kringum brauð-
sneiðarnar og klippið steinselju yfir. Látið
réttinn strax á borðið og framreiðið bjór eða
pilsn'er með.
Nýtízku moldvövpuhrúga.
%—1 kg. epli, ofurlítið vatn,
V2—1 vanillustöng, sykur og portvín
eftir smekk,
% 1 rjómi,
1 pk. eða 150 gr. rúgbrauðsrasp,
V2—1 plata af suðusúkkilaði,
græn vinber.
Afhýðið eplin, takið kjarnana úr og skerið
eplin í smástykki. Sjóðið þangað til þau eru
orðin lin, í mjög litlu vatni. Látið síðan
vanillustöngina og vanillukornin iit í ásamt
sykrinum. Bætið sykri út í ef ykkur þykir
þurfa, þegar eplamaukið er orðið nokkuð
jafnt. Látið portvín út í. Ausið köldu mauk-
inu upp á flatt fat og breiðið úr þeyttum
rjómanum yfir. Yfir rjómann stráið þið
svo rúgbrauðsraspinu og yfir rúgbrauðs-
raspið er rifnu súkkulaði stráð. Skreytið með
grænum vínberjum. Þessi réttur bragðast
mjög vel með portvíni.
Appelsínur í sherrýkremi.
4 meðalstórar appelsínur,
sykurlögur af 2 dl. vatni,
IV2 dl. sykur,
Sherrykrem úr 1 dl. þeyttum rjóma,
1—2 msk. súr rjómi, slierry og ofurlít-
ill sykur.
Afhýðið appelsínurn'ar með beittum hníf,
þannig að allt hýðið náist af, einnig það
hvíta. Látið afhýddu appelsínurnar í sykur-
löginn og sjóðið þær í 7—8 mín. Þær mega
gjarnan kólna í sýkurleginum.
Fjarlægið hvíta lagið innan á berkinum
af 1—2 appelsínum, skerið gula börkinn í
lengjur, látið svolitla stund í sjóðandi vatn
og sjóðið síðan í sykurleginum. Þeytið rjóm-
ann og hrærið súra rjómann íit í og bragð-
bætið m'eð sherrý og sykri.
Látið massann í ábætisskálar eða glös 0g
látið kalda appelsínu í hverja skál. Látið
síðan soðinn appélsínubörkinn yfir. Pram-
reitt með siikkul'aðiískexi. Gott er að láta
lítinn disk fylgja, sem hægt er að láta appel-
sínuna út á og skerið í sundur.
Hér er svo uppskrift af tveimur mjög góð-
um og auðveldum pottréttum.
Risotto.
2 laukar,
IV2 msk. smjörlíki,
250 gr. xiautakjöt (liakkað),
1 lítil dós af niðursoðnum tómötum,
250 gr. hrísgrjón,
V2 1. sjóðandi vatn ásamt 2 súputen-
ingum, salt.
HEIMILISBLAÐIÐ
35