Heimilisblaðið - 01.01.1970, Side 38
„Sœktu regnlilífarnar, það rignir og við þurfum
að fara í bæinn! ‘ ‘ „Því miður hefur mölur étið
klæðið af báðum regnhlífunum og skilið aðeins eftir
grindurnar." „Við förum þá í vaðstígvél og sund-
boli,“ segir Palli. „Já„ og tökum regnhlífarnar með
okkur til Soffíu frænku, hún er eflaust fús að setja
nýtt klæði á þær! ‘ ‘ Og það var sannarlega undar-
leg sjón að sjá bangsana tvo á ferð þeirra um skóg-
inn skömmu seinna.
Bangsarnir eru nýbúnir að baka ljúffenga köku.
„Við slculum eta hana strax,“ segir Kalli. „Nei,
fyrst látum við iiana kólna og leikum okkur úti á
meðan,' ‘ svarar Palli. Þeir fara í feluleik og þegar
röðin er komin að Palla að leita, fer iiann á bak við
tré og telur upp að tuttugu. Á meðan felur Kalli
sig — og það svo vel, að ekki er nokkur leið að finna
liann, jafnvel þótt öll dýrin lijálpi til við leitina.
En allt í einu dettur Palla í liug nýbakaða kakan
heima á borði. Og alveg rétt. Þeir koma í því að
síðasti munnbitinn hverfur ofan í sælkerann gráðuga.