Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.05.1977, Side 3

Heimilisblaðið - 01.05.1977, Side 3
Lifandi huliðshjúpur Eftir DONALD og LOUISE PEATTIE Frá sjónarmiði okkar mannanna séð hef- Ur meginþorri þeirrar litadýrðar, sem sjá ^á í náttúrunnar ríkið engan hagkvæman tilgang. Okkur finnst hún aðeins vera dá- samleg og alltumlykjandi sönnur á fjöl- breytileika lífsins. En fyrir fjölmörg dýr eru litirnir einmitt nauðsynlegt og áhrifa- 'ikt vopn í sjálfri lífsbaráttunni. Huliðshjúpar móður áttúru taka öllu því Ham, sem mönnunum hefur tekizt að láta Ser til hugar koma í þeim efnum. Þegar öitthvert dýr fellur gjörsamlega inn í um- hverfi sitt sökum litarháttarins, þá er það öi'uggt fyrir óvinum sínum — og getur Uru leið legið í leyni fyrir sinni eigin bráð, þess að eftir því sé tekið. Froskurinn hkist yfirleitt þeim moldarhnaus sem hann húkir á, sé hann í hvíld; en sé hann meira a hreyfingu þá skiptir hann gjarnan um ht og verður þá e. t. v. grænn á bakinu eins og andapollurinn sem hann syndir í ' °g ljósari á kviðnum, eins og sá bjanni virðist vera sem að ofan berst í pollinn. Hvítabjörninn og snæuglan eru mjög ljós- ^eit. eins og sú hvíta auðn sem er um- hverfis þau. Litföróttur fiskur hitabelt- auna leitar á hættustund inn í hin marg- breytilega litu göng kóralrifjanna. Strand- tuglar verpa dílóttum eggjum sínum rétt tyrir ofan sórtraumsfjöruna, þar sem þau minna á smásteina í sandinum. Sama til- gangi gegnir blettóttur feldur unghjart- arins, sem gerir honum fært að liggja hreyfingarlaus á botni skógarins, án þess að eftir honum sé dekið. Og ýmsar fiðr- ildategundir verða nánar ósýnilegar, þeg- ar þær setjast á trjágreinar. Mörg dýr virðast bregða yfir sig hul- iðshjúp með eftirlíkingu einhverra hluta úr umhverfi sínu, eða beinlínis með því að nota hlutina sjálfa. Ymsar lirfur not- ast við mosa og skófir, aðrar hylja sig með dauðum flugum. Sumar krabbateg- undir hafa einskonar stinna bursta, sem þeir skreyta með þörungum eða sveppum til að leyna sér. Svampkrabbinn heggur þannig væna sneið af litríkum svampi, þannig að hann geti breitt vel yfir sig og haldið þessu föstu með sérstökum löpp- um. Og allir þekkja aðferð kolkrabbans til að rugla óvini sína í ríminu: að spúa frá sér „reykskýi“ af einskonar bleki og hverfa þannig óséður á brott. 1 dýraríkinu fyrirfinnast ýmsar kynleg- ar aðferðir til þess að forðast athygli ann- arra. I hitabeltinu eru ýmsar sníkjujurtir með sama litarhátt og þau tré, sem þau lifa á. Glerflug.an, sem heyrir til fiðrild- unum, hefur glæra vængi sem eru gagn- sæir — þannig að maður sér yfirleitt í

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.