Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.05.1977, Side 4

Heimilisblaðið - 01.05.1977, Side 4
gegnum dýrið, eða öllu heldur: kemur alls ekki auga á það. önnur tegund fiðr- ilda líkist í kyrrstöðu einna helzt visnuðu laufblaði, ekki aðeins hvað litarháttinn snertir, heldur einnig lögun vængjanna og litbrigði þeirra. Já, jafnvel þegar það er á flögri minnir það fyrst og fremst á fjúk- andi lauf! Sérkennilegt skordýr, sem nefnt hefur verið „flökkutitturinn", minnir helzt á lít- inn kvist, bæði að lit og lögun. Og til þess að gera sjónhverfinguna enn áhrifaríkari, stillir það sér gjarnan á ská út frá grein- inni sem það situr á. Snerti maður við því, lieldur það áfram að reyna að hegða sér eins og þéttur smákvistur. En endur- taki maður snertinguna, þá sprettir það út löppum sínum og hefur sig sem skjót- ast á brott, líkt og það sé sármóðgað yfir því, að maður skuli hafa séð í gegnum huliðshjúp þess . . . Fjölmörg önnur dýr eru gædd þessum sama hæfileika að leggja áherzlu á lit- hjúps-blekkingu sína með sérstökum hreyf- ingum og stellingum. Sefhegrinn er gott dæmi um slíkt. Þessi grannvaxni fugl, klæddur röndóttóttum fjaðurbúnaði, get- ur staðið fullkomlega hreyfingarlaus í sef- inu, svo að næsta ógerlegt er að greina hann frá umhverfinu. Og þegar vindurinn bærir sefið til og frá, þá hreyfist hann líka í fullkomnum takti. Fiðrildi, sem hafa vængskreytingu eins og visnuð blöð, sitja ætíð þannig, að þau geti litið út sem visnuð blöð. Og sum skor- dýr hitabeltisins safnast saman í hópa, öll með höfuðin í söm.u átt, þannig að þau mynda munstur, sem líkjast blómum þeirra trjáa sem þau sitja á. Hinir skæru litir í fjöðrum karlfugl- anna þjóna að sjálfsögðu þeim tilgangi að vekja athygli kvenfuglanna. En þeir eru líka til þess gerðir að leiða athyglina frá fjaðurham kvenfuglsins, sem yfirleitt er síður áberandi. 1 sumum tilfellum getur karlfuglinn jafnvel stökkt á brott óvin- veittum keppinaut með litskreytingunni einni saman. Það sést bezt á hringfasan- inum, sem sinn hvorum megin á hálsin- um er með rauðan húðsepa, sem hann þen- ur út þegar hann stendur frammi fyrir öðrum karlfugli. Slíkt dregur út sjálfs- trausti þess, sem árásina ætlaði að gera, og hann læðist jafnvel burtu án þess að þora að leggja í nokkra orustu. Ef komið hefur verið fyrir örlitlum svörtum lit á húðsepum þessum, þannig að glans þeirra verði daufari, þá er árásaraðilinn vís til að láta ekki blekkjast. Þegar talið berst að huliðshjúpi í dýra- ríkinu, verður manni ósjálfrátt hugsað til kamelljónsins, sem er þekkt að því að skipta litum eftir því hvernig umhverfi þess er hverju sinni. Þó eru öllu fleiri og furðulegri dæmi slíks meðal fiska, froska, krabba og kampalampa. Sumar rækjuteg- undir geta skipt fullkomlega um lit á fá- einum mínútum, og þar er um mjög mikla litafjölbreytni að ræða: grænt, þegar dýr- ið heldur sig í þangskóginum; fjólublátt, brúnt eða blágrænt, þegar verið er innan um þörunga, og svo yfirleitt blátt að nóttu til. Flatfiskar eru með bæði augun annars- vegar á höfðinu; en jafnvel þegar þeii' liggja á botninum og horfa upp á við, þá verða þeir varir við breytingar umhverfis sig á botninum og skipta um lit í samræmi við það. Setji maður flyðru ofan á línóle- umdúk með mislitu mynstri, þá aðlagar hún lit sinn munstrinu eftir getu. Enn eitt dæmi um þýðingu litanna fyrir dýr og jurtir er samspil það, sem á sér stað milli sumra skordýra og eftirlætis- jurtanna þeirra. Sumar orkídeur hafa á neðstu, vara-löguðu krónublöðunum eins- konar gult munstur, sem minnir harla mikið á kvenvespu. Karl-vespa lætur lokk- ast af þeessu og lendir af ákafa á blað- inu; en áður en hann hefur áttað sig, hef- ur plantan fest örsmáar kúlur af blóm- ryki við höfuð karl-vespunnar, en þeg- ar hann svo í næsta skipti heimsækir blóra J 76 HEIMILISBLAÐlP

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.