Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.05.1977, Síða 18

Heimilisblaðið - 01.05.1977, Síða 18
Algie gamli Thomas gerði líka eins og hann hafði sagt. Reyndar þaut hann ekki af stað út úr bænum til að leita; þegar hann hafði sofið góðan blund, lagði hann á hest sinn og fór svo einn af stað. Hann var ekki kominn langt, áður en var kallað og hrópað á hann. Jess Sher- man hafði horfið af heimili sínu um nótt- ina, og undir morguninn hafði hesturinn komið með hnakknum á, en án eigandans. Hvað gat hafa orðið af Sherman? Það, sem menn vissu, var, að hann hafði hátt- að án þess að vita, að Skugginn var slopp- inn af veitingahúsinu. Algie Thomas tók strax forystuna við að leita að Sherman. Fyrir mann með söm.u reynslu og sheriffinn hafði í þessum efnum, var þetta ekki svo mikill vandi. Þeir fundu slóðann eftir hest Shermans strax, hann lá yfir gljúpan jarðveg, lá án nokkurra útúrdúra beint að rjóðrinu í skóginum. Þar lá Sherman með andlitið upp í loft- ið og rauðan blett í miðju enninu. Meiri hlutinn af hópnum, sem var með sheriff- anum, sneri nú heimleiðis með líkið, en Algie Thomas og nokkrir aðrir héldu áfram. Líkið var nú fundið og þau spor, sem lágu frá staðnum, þar sem þetta voða- lega verk var unnið, hlutu að vera spor morðingjans. Það lá bein slóð að húsi Plummers. Þar hafði morðinginn stigið af baki. Algie steig einnig þarna af baki og fylgdi nákvæm- lega sporunum meðfram húsinu. „Viljið þið sjá þetta herbergi hér í end- anum,“ sagði hann við fylgdarmenn sína, sem eftirvæntingarfullir komu á eftir gamla manninum. ,,Á ég að segja ykkur, hver það er, sem sefur hér?“ ,,Hver?“ spurðu þeir. „Hefur þú komið þar upp, sheriff?“ „Aldrei, en ég þori að ábyrgjast, að þetta er herbergi Sylvíu Rann.“ Muldur, fullt af áhuga, var svarið, sem hann fékk. 90 „Skrifaði Skugginn ekki bréf skömmu eftir að ráðizt var á hann í rjóðrinu? Skrifaði hann ekki, að hann mundi koma aftur og þá skyldu þessir þrír launmorð- ingjar fá nýjar fréttir af sér? Já, hann sagði það og hefur líka efnt það. Hann er kominn til baka, og Jess Sherman er sá fyrsti, sem hann nær í. En hvað gerði Skugginn svo eftir að hafa unnið þetta verk? Hann fór beint til Sylvíu til að segja henni, að hann væri kominn aftur til hennar, og hann væri búinn að gera upp reikningana við einn óvina sinna. Finnst ykkur það hljóða nokkuð ólíklega?" Þeir fylgdu sheriffanum í þessu máli sem öðru, og héldu svo allir inn í húsið. Sheriffinn hitti Sylvíu Rann frammi í eld- húsi. „Um hvert leyti var það, sem Skugg- inn kom. í nótt, ungfrú Rann?“ spurði sheriffinn. „Það var . . .“ Hún þagnaði í einni svip- an, en sá, að hún hafði talað af sér. „Hann hefur komið til að segja yður, hvað hann hafði unnið, var það ekki, ung- frú Rann?“ Sylvía svaraði ekki, en það voru komn- ir rauðir blettir í kinnarnar; samt leit hún ekki undan, heldur horfði beint í augu sheriffans með sínu rólega augna- ráði. „Verið óhræddar, ég kom ekki til að reyna að fá yður til að segja nokkuð, sem hægt væri að hylja lengi, því megið þér trúa. Jess Shermans var saknað strax í morgun, og við komum núna ofan frá rjóðrinu, þar sem við fundum líkið ...“ „Jess Sherman dáinn?“ Það var ekki nokkur efi á, að geðshrær- ing hennar var ósvikin. Hún reikaði til á fótunum, greip höndum fyrir andlitið, líkt og þessi frétt hefði blindað hana. Þannig stóð hún um stund, með beygt höf- uð og titrandi yfir allan líkamann. Hann hafði komið til hennar og farið að tala um ástir og hjónaband, — eftir HEIMILISBLAÐIÐ

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.