Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.05.1977, Page 22

Heimilisblaðið - 01.05.1977, Page 22
aði því. „Hefurðu hlunkað á einn í nótt.“ ,,Ég-?“ sagði Jim Cochrane. ,,Það var iygi, ég hef ekki skotið Jess Sherman, en ég kæri mig ekki um að hafa þennan gamla sporhund á hælum mér. Hvers vegna skyldi hann ekki halda sig heima við? Það ætti við fyrir mann á hans aldri.“ „Ég hef heyrt, að það séu komnir í hann mikilmennsku órar,“ sagði Scottie. „Það er sagt, að hann hafi einsett sér að elta Skuggann uppi. Ég skil ekki, hvernig hann hefur rakið sporin til þín.“ Hann sat boginn með olnbogana studda á hné séi', og starði með undirförlu og at- hugandi augnaráði á Jim Cochraen. En hann hristi einungis höfuðið. „Skugginn?" sagði hann og hló við. „Þú heldur þó ekki líka, að ég sé konungur Englands, Scottie!" „Hver er þá — Skugginn?“ „Það veit ég ekki,“ sagði Jim. „En hann er maður, sem maður getur tekið ofan fyrir.“ XVI. Fífldirfska Tom Converse. Tom Converse þaut í dauðans ofboði út úr bænum. Það var sem undrahesturinn finndi óslitinn veg yfir allar þær girðinga- flækjur og annað skran, sem var bak við gripahús veitingahússins. Hvílíkur hestur, þessi dásamlegi Captain! Það leit út fyrir, að hann hefði kattaraugu og sæi í myrkri, sem um hábjartan dag. Og hann hafði full- kominn mannsheila til að velja veginn. Hann stökk áfram, og skyndilega lyfti hann sér yfir háa girðingu, svo að Tom var næstum hrotinn af baki. Undir eins og þeir voru komnir spöl- korn inn í skóginn, hægði þessi skynsama skepna á sér. Það var eins og skuggi, sem liði á milli trjábolanna yfir hina mjúku jörð, sem var þakin þykku, angandi furu- nálateppi. Háreystin í mönnunum, sem eltu hann, var langt í burtu. Ópin og skotin í öllum áttum sögðu honum, að þeir hefðu misst af honum. Loks komust þeir út úr skóginum. Tom áði undir dálítilli hæð og fór að hugsa út í, hvernig hann ætti að snúa sér í þessu. Hann var algerlega ringlaður af öllum þessum viðburðum, en það var eitthvað annað en hann væri hræddur. Heldur hafði þetta kveikt bál ævintýraþráarinnar í brjósti honum, og á þessari stundu gat hann lagt í allt, hvað mikla hættu sem það væri. Nú sat hann á baki dásamleg- asta hesti, sem til var í heiminum, og viss- an um það jók hug hans og sjálfstraust. Einnig vissi hann vel, að það var lang- ur vegur frá að hann væri úr allri hættu enn þá. Enginn leitarmannanna mundi finna hann, en það var til nokkuð, sem hét símskeyti, og áður en næsti dagur væri liðinn mundi verða orðinn svo þéttur um hann vefurinn, að vandi yrði að sleppa með óskrámaðan bjórinn. Helzt fannsthon- um ráð að stefna beina leið til heimkynna sinna, þar sem enginn tæki hann fyrir annan en Tom Converse, sem þeir hefðu þekkt í mörg ár. Bústaður föður hans var bara í mörg hundruð mílna fjarlægð, og reynsla síðustu daga hafði sýnt honum í tvo heimana. Hann var viss um, að sá fyrsti, sem hann hitti, mundi senda hon- um kúlu, án þess að spyrja um leyfi. Hjartað barðist í brjósti hans eftir þenn- an voðalega flótta. Við það að þreifa í hjartastað, heyrði hann skrjáfa í bréfi, í einni svipan snerust hugsanir hans að öðru. Bréfið — hið leyndardómsfulla bréf, sem hafði verið kastað inn í herbergið til hans á veitingahúsinu! Hann var þess full- vissari en nokkru sinni áður, að það var fallega stúlkan á silfurgráa hestinum, sem hafði skrifað bréfið og hent því inn til hans. Aðeins einu sinni hafði hann lesið það, en innihaldið hafði hreint og beint brennt sig í sál hans. Benn, sem var í fangelsi í Carlton. — Það var svo biðjandi von um, 94 HEIMILISBLAÐIÐ

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.