Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.05.1977, Side 27

Heimilisblaðið - 01.05.1977, Side 27
elsku drengnum sínum; það byg-gi margt gott í honum, þrátt fyrir ofsa hans. Abe táraðist, þegar hann las þetta bréf. En hann var reiðubúinn til að hjálpa »Hönnu frænku“, eins og hann nefndi hana. Ef til vill gat hann nú endurgreitt henni alla þá gæzku, sem hún hafði ætíð auðsýnt honum. Hann bað hana að koma til Springfield og sagðist ætla að taka að sér mál Willi- ani.s endurfjaldslaust. Hann var sann- H’æður um að Williams væri saklaus. En nlnienningsálitið var á móti honum. Flest- lv töldu hann vera morðingjann. Kviðdómur átti að dæma í málinu. Með öðrum orðum voru það menn úr byggðar- Uginu, sem áttu að dæma William. En sb'kur dómstóll hlaut að verða hlutdræg- Ur> þar sem allir héraðsbúar höfðu tekið nfstöðu gegn William. >,Við verðum að fá málinu frestað þang- nð til gremja fólksins rénar,“ sagði Abe við Hönnu frænku. ,,0g láta son minn máske sitja í lang- an tíma í fangelsi,“ saffði móðirin kvíða- full. „Betra er það þó, en að hann verði dæmd- lIr °g hengdur einhvern daginn,“ sagði Abe rólega. Abe heppnaðist líka að fá málinu frest- að til næsta vors. Og hann notaði tímann ^ að safna sönnunum fyrir sakleysi Willi- ams. Þegar málið var tekið fyrir á ný var Holdi fölks saman komið í réttarsalnum. 11 nú voru allir rólegir. Nú voru leidd fram mörg vitni, sem öll uiiyrtu að Williams væri morðinginn. Eitt Htnanna sagðist hafa séð William veita etzgar banahöggið. „Um hvaða leyti var það?“ spurði dóm- ai’inn. „Milli klukkan tíu og ellefu!“ »Var ekki myrkur þá?“ „Nei, glaða tunglskin var og ég sá vel pað sem skeði.“ H E I m I L ISBLAÐIÐ Framburður annarra vitna var á líkan hátt. Málið varð æ alvarlegra fyrir Willi- am. Augu allra hvíldu á Lincoln. Hverju myndi hann svara þessu? Nú hafði hann tekið að sér málsvörn fyrir morðingja. Abe reis úr sæti sínu. Átakanleg þögn hvíldi yfir öllum í réttarsalnum. Abe mælti lágri röddu og sýndi fram á, að ekki væri óhætt að treysta öllum vitnunum. Síðan Ijrfti hann upp hægri hendi eins og hann ætlaði að reka á brott alla kærendur Willi- ams. „Aðalvitnið sagði, að morðið hefði verið framið kl. hálfellefu og þá hefði verið tunglskin. En athugið almanakið. Tungl- ið kom ekki á loft fyrr en hálf tólf um- rætt kvöld! Öll er sagan því uppspuni!“ Nú kom upp ókyrrð mikil meðal áheyr- endanna. Reiði þeirra bitnaði nú á ljúg- vitnunum. Abe hélt áfram ræðu sinni, sem kom mörgum til að tárast. Hann lauk máli sínu með þessum orðum: „Ég treysti því að réttlætið sigri og að William fái þegar í kvöld, sem frjáls maður, að sjá sólina hníga til viðar.“ Hann var auðvitað sýknaður. Móðirin ruddi sér braut til Abe til þess að þakka honum. En hún gat ekkert ann- að en grátið af gleði og kom engu orði fram yfir varir sér. Abe var líka hrærð- ur, en reyndi að hemja tilfinningar sínar og sagði: „Sagði þér þetta ekki, Hanna frænka. Ég vil nú biðja til Guðs, að William láti sér þetta að kenningu verða og lifi fram- vegis réttlátu og siðsömu lífi.“ En aldrei gleymdi Abe fátækum for- eldrum sínum á meðan honum miðaði áfram á braut frægðarinnar. Oft heim- sótti hann þau og færði þeim peninga. Einu sinni voru honum greiddir 500 dollarar fyrir mál, sem hann flutti. „Ef ég hefði 500 dollurum meira skyldi ég kaupa jarðarskika og gefa stjúpu minni,“ sagði hann við einn vin sinn. 99

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.