Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.05.1977, Side 28

Heimilisblaðið - 01.05.1977, Side 28
„Ég skal lána þér 500 dollara." „Fyrirtak," sagði Abe og setti sig nið- ur til að rita skuldabréf. „Þú getur gefið stjúpu þinni jörðina með því skilyrði, að þegar hún deyr — hún hlýtur að vera orðin gömul — þá eign- ist þú jörðina aftur,“ sagði vinur hans. „Nei, alls ekki,“ sagði Abe ákveðinn. „Það væri lítilfjörlegt endurgjald fyrir alla ást þá og tryggð sem hin góða kona hefur auðsýnt mér. Ekki vil ég launa henni með því, sem er lítils eða einskis virði.“ Hægt, en sígandi fram á leið. Árið 1846 var Abraham Lincoln kjör- inn meðlimur sambandsþingsins — þannig var ríkisþing Bandaríkjanna nefnt. Hann notaði hvert tækifæri sem gafst í sambandsþinginu til þess að berjast gegn þrælahaldinu. Það er grimmilegt og órétt- látt, sagði hann hvað eftir annað, að mönn- um sé misþyrmt á svo skammarlegan hátt, þótt svertingjar séu. Þeir eru þó menn, eins og við, skapaðir af Guði. Um þessar mundir var háð hörð bar- átta um Texasríki. Suðurríkin vildu, að Texas yrði líka „þrælaríki“. Auðvitað barðist Lincoln gegn þessu. Það átti að afnema þrælahaldið, en ekki láta það breið- ast út. Árið 1848 hafnaði Lincoln endurkosn- ingu. Hann hafði komizt að raun um, að hann átti margt eftir ólært. Hann las og lærði af iðni, þótt hann væri nú orðinn 39 ára að aldri. Hann hafði séð, að ýmsir ríkisþingmenn voru honum fróðari. En hann varð aldrei of vitur né of gamall til að læra. Og á örfáum árum jók hann svo menntun sína, að hann varð þekktur ræðuskörungur og rithöfundur. Framveg- is var ekki hægt að ganga fram hjá hon- um og segja, að hann væri maður úr sveit- inni, sem ekkert skyldi né vissi. Þannig verðskuldaði hann sökum mennt- unar sinnar og þekkingar að skipa æðstu trúnaðarstöðu í landinu. Hann lifði i nokkur ár í kyrrþey. Öðru hvoru ritaði hann greinar í blöðin eða ferðaðist um til að stofna bindindisfélög. En árið 1854 gat hann ekki lengur setið aðgerðalaus. Hann varð að taka upp bar- áttuna gegn áhangendum þrælahaldsins og stjórnmálaspillingunni. Því hafði verið lofað að þrælahaldið fengi ekki að breið- ast til Norðvesturríkjanna. En loforð þetta var svikið. Þrælahaldið festi rætur á lög- legan hátt bæði í Kansas og Nebraska. Það var maður að nafni Douglas, sem hafði komið þessum svívirðilegu áformum fram. En nú kom Abraham Lincoln fram á sjónarsviðið. Douglas flutti ræðu í Springfield. Degi síðar talaði Lincoln gegn honum á sama stað. í þrjár klukkustundir talaði hann. Ýmist titraði rödd hans af meðaumkun með hinum undirokuðu eða varð þrungin gremju gegn þeim, sem vildu viðhalda þrælahaldinu. Áheyrendurnir hlýddu á hann kyrrlótir. En þegar hann lauk ræð- unni brutust út húrrahróp og konurnar veifuðu höfuðklútum sínum. Douglas þorði ekki að segja meira í Springfield. En Lincoln fylgdi honum eftir til ann- arra borga. Lincoln varð oft fyrir haturs- fullum og grimmilegum árásum. Á fundi einum var gripið fram í fyrir honum með háðslegri röddu: „Er það satt, hr. Lincoln, að þú hafir haldið innreið þína í þetta ríki berfætt- ur með uxa fyrir vagni þínum!“ Augnablik þagði Lincoln. Fyrir hug' skotssjónum hans svifu minningarnar um fátækt hans og þrældóm í æsku. Síðan sagði hann: „Ég held að minnsta kosti tylft við- staddra, sem eru virðingarverðari menn en sá, sem greip fram í fyrir mér, gætn borið vitni um þennan atburð. Ég tel mér það heiður, sem hann hæðist að mér fyrir.“ Síðan útskýrði hann hvernig frjáls- lyndri ríkisstjórn bæri einnig að greiða 100 HEIMILISBLAÐIP

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.