Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.07.1977, Blaðsíða 14

Heimilisblaðið - 01.07.1977, Blaðsíða 14
það var allt verk Freddie — og hann sagði: „Það eina sem ég lifi fyrir er sú von, að Dahlia muni hverfa heim aftur.“ Freddie sagði ekki orð. Hún beit á vör sér og hraðaði sér fram í eldhúsið, en tárin ollu þoku fyrir augum hennar. — Þar sem ísinn var einu sinni brotinn, var eins og Terry væri aldrei búinn að tala nóg um Dahliu sína. Darhliu hefði ekki verið um þetta eða hitt gefið; Dahlia hefði glaðzt af því að sjá bömin með þess- ar litlu, hvítu svuntur með rauðu útsaum- uðu ðrósunum — sem Freddie hafði gert. Daliliu myndi hafa þótt matur Freddie góður, kökurnar hennar og sultutauið dá- samlegt . . . Freddie hefði getað æpt framan í hann: Já, hún hefði sjálfsagt verið hrifin af þessu öllu, öllu því sem aðrir hefðu gert fyrir hana. En hvers vegna gerði hún aldrei neitt á meðan hún hafði tækifæri til þess? Hún hefði sjálf getað saumað utan á börnin, hún hefði getað búið til góðan mat. En hún nennti því ekki. Hún vildi ekki ómaka sig til slíks. En Terry varð ekki við bjargað í hug- uninni um dökka lokka Dahliu sinnar, end- urminningunni um hvíta armleggi hennar og heillandi brúnu augun. Á kvöldin sat hann við að skrifa Dahliu bréf, hverja örk- ina eftir aðra, og biðja hana um að snúa til sín aftur. Svo var fyrir að þakka því góða atlæti, sem hann átti nú við að búa, að hann fór aftur að finna fyrir eðlilegu sjálfstrausti; hús hans var vel hirt, börnin líka og hann sjálfur. Honum fannst alveg óskiljanlegt, ef Dahlia fengist ekki til að hverfa heim aftur . . . Freddie fór að fá það á tilfinninguna, að Terry áliti allt sem hún gerði í húsi hans sem einskonar undirbúning að því, að Dahlia gæti snúið heim á ný og komið að heimili sínu í viðunandi ásigkomulagi. Að hún væri með öðrum orðum að hlú að 122 hreiðrinu fyrir Dahliu, svo að allt væri til reiðu, þegar henni þóknaðist að koma heim.------ „Nú getur hugsast að ég fái atvinnu," sagði Terry við hana einn daginn, „því þeir eru að hugsa um að hefja verksmiðju- reksturinn að nýju.“ Hann þagnaði and- artak, síðan kom á hann þessi svipur sem jafnan varð þegar hann minntist á Dahliu, enda bætti hann við: „Og þá fer ég og vitja Dahliu . ..“ „Haldið þér, að hún verði hamingjusöm hér ?“ „Já, eftir að þér hafið fengizt á heim- ilið, Freddie. Þér hafið gert kraftaverk. Því skal ég aldrei gleyma. Dahlia verður glöð af því að vera hér, úr því að þér eruð hér.“ „Eigið þér við, að ég verði hér áfram eftir að konan yðar er komin heim aftur?“ Hann virti hana fyrir sér. „Já, því ekki það?“ „Það getur ekki orðið um slíkt að ræða.“ Terry varð langleitur í framan. „Nú, en ekki farið þér að yfirgefa okkur núna. Hvað gætum við gert án yðar? Börnin . . ?“ Augu Freddie fylltust tárum, en hún var róleg þegar hún svaraði: „Eg geri ekki ráð fyrir því, að konan yðar kærði sig um það, að ég væri hér.“ „Jú, því nregið þér treysta. Það myndi koma henni stórlega vel!“ hrópaði Terry barnalegur. „Hún er vel til þess fallin að búa við slíkt. En daglegri hússtjórn hefur hún ekkert vit á. Hún elskar börnin að sjálfsögðu, en hún verður iðulega þreytt á þeim.“ „Ég get vel trúað því,“ svaraði Freddie þurrlega. Terry fékk atvinnuna, sem hann hafði talað um, og dag nokkurn skildist Freddie, að nú ætlaði Terry sér að fara til fundaí vi Dahliu. Henni skildist það á þeirri óró, sem hann var gripinn. Hann gekk óróleg' ur um gólf í stofunum og greip myndii* HEIMILISBLAÐlP J

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.