Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.09.1977, Blaðsíða 4

Heimilisblaðið - 01.09.1977, Blaðsíða 4
heyrir, en þeim mun æstari sem einn fugl er, þeim mun hærra syngur hann. Mús- arrindill nokkur varð einu sinni svo upp- vægur yfir þeirri frekjulegu karlfugls- rödd, sem hann heyrði að komin var inn á hans eigið yfirráðasvæði, að ég varð að stöðva grammófóninn til þess að fuglinn fengi ekki slag. Sú hugmynd að taka fuglsraddir inn á grammófónplötur er ekki ný af nálinni. Hún er runnin frá fuglafræðingnum Peter Kellogg. Fyrir u. þ. b. 40 árum fann Kell- og upp á því, þá ungur kennari, að not- a.st við fuglsraddir við kennsluna, og það varð upphafið að sérstakri vísindagrein, sem nefnist líffræðilegur hljómburður (biologisk akustik). Fyrstu upptökur Kell- oggs voru af vanefnum gerðar — veikir fuglsskrækir, sem drukknuðu í utanaðkom- andi hávaða. I eitt skipti, þegar fugl hopp- aði upp á sjálfan hljóðnemann og söng þar allt hvað af tók, Kellogg til mikillar ánægju, varð upptakan gersamlega gagns- laus vegna þess að fuglinn hafði að sjálf- sögðu ekki staðið kyrr á hljóðnemanum, heldur hoppað og krafsað, svo að af því varð megnasti skruðningur á plötunni! Það var ekki fyrr en Kellogg fékk svokall- aðan „parabolreflektor", einskonar íbjúgt rafeyra, sem nam fjarlægar fuglsraddir og einbeindi þeim að hljóðnemanum, að æskilegur árangur náðist. Með því að hengja slíkt tæki upp í tré eða annað slíkt, gat Kellogg gert hljóðupptökur af fuglum eins og svölum og snípum, sem syngja mjög á flugi sínu. Möguleika grammófónsins sem tálbeitu uppgötvaði Kellogg þó fyrst þegar hann, staddur í Florida, spilaði plötu eina með söng hláturkrákunnar. Fokvond hlátur- kráka kom í ljós úti fyrir glugganum og hjó goggnum í glerið. Kellogg starði undr- andi á fuglinn. Gat það hugsazt, að fugl- inn gerði engan greinarmun á grarnmó- fónplötu og fugli úti í nátttúrunni? Hann setti hátalara út fyrir dyrnar. Óðara er hann setti grammófóninn af stað tók fugl- inn að vappa í kringum hann í leit að keppinaut sínum, en þegar hanun fann engan slíkan hoppaði hann upp á nálæga grein og reyndi allt hvað af tók að hræða hann á brott. Kellogg skildist, að með þessu móti væri hægt að ná í fullkomnai' upptökur á hljóðum fugla. Strax eftir að Kellogg var kominn heim til New York fór hann í skógarför með upptöku af rödd spörfugls nokkurs sera sendir frá sér mjög sérkennilega og háa tóna, 130 talsins á sjö og hálfri sekúndu; þar er vetrar-músarrindillinn svokallaði- Hann kom auga á slíkan músarrindil hvai’ hann sat og söng hátt uppi í grenitré. Bu varla var grammófónninn fyrr farinn af stað en fuglinn kom og tók að syngja 1 u. þ. b. hálfs meters fjarlægð frá hljóð- nemanum. Þannig hélt hann áfram í hálf' tíma og rak upp hvern furðuskrækinn eftii’ annan. Næstu áratugina tók Kellogg upp fugla' raddir allt frá Suðurheimskautslandinu til Mið-Ameríku, frá Bandaríkjunum til EvT' ópu og Afríku. Hann varði miklum tímíl í það að ,,þýða“ laglínur fuglanna yfir a viðeigandi línurit með tilhjálp svokallaðS audiospektografsð margbrotins tækis, sein m. a. er notað við að hljóðgreina mannS' raddir við tungumálarannsóknir. Með slík11 tæki er hægt að mæla alla tóna og yfiJ’' tóna í kvaki og tísti fuglanna (flest sl$ fuglahljóð vara annars skemur en tvíeJ sekúndur). Tæki þetta hefur m. a. leitt 1 ljós, að bandaríski skógarþrösturinn syn£' ur í fögrum þríhljómum, þar sem gruiU1' tónninn er hreinn, en hærri tónarnir kouU* fram sem síbreytilegt bergmál. Fuglafræðingum hefur lengi verið þaí' ljóst, að skrækir, tíst og garg fugla haf^ sérstaka merkingu og eru ólík, eftir þvl hvort um er að ræða „Hættu“, „Hjálp* ’ „Mat“ eða eitthvað enn annað. Ég sp^' aði eitt sinn upptöku á matargargi máf' anna og horfði á hvar þeir hófu sig ti HEIMILISBLAÐl^ 148

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.