Heimilisblaðið - 01.09.1977, Blaðsíða 10
pallinum, en Kristine sat kyrr og starði
á eftir honum. Hvað átti þessi undarlega
framkoma að þýða? Hann var í versta
skapi sem hugsast gat, en vegna hvers
í ósköpunum vildi hann sækja Niels? Og
hvernig hafði hann getað komizt að því,
að þau voru heitbundin?
Basthlom liafði nú gripið sér í hönd
eikarstaf að vopni, og þannig hervæddur
tók hann á rás í taktföstu skálmi út eftir
götunni. Andlit hans var svarbláttt af
reiði og augun skutu gneistum. Aldrei fyri'
hafði þessi maður verið særður jafn djúpt-
Ef þessi ungi sláni hefði fengið þá flugu
í hausinn að vilja kvænast Kristine, þá
skyldi sá gamli hafa verið maður til að
koma í veg fyrir það. En núna, þegar ná-
unginn sá arna hafði ákveðið að giftast
henni alls ekki •— þá var það slík regiH'
móðgun að gamli maðurinn vildi ekki láta
slíkt viðgangast að sér heilum og lifandi-
Pilturinn skyldi fá að kenna á því, hverj'
154
H E I M I L I S B L A Ð I ^