Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.09.1977, Qupperneq 26

Heimilisblaðið - 01.09.1977, Qupperneq 26
Og- nokkru seinna sendi hann annað sím- skeyti: ,Held nú inn í Richmond!" En ráðherrann varð óttasleginn. Hann óttaðist að óvinir hans myndu drepa hann, þegar hann héldi inn í höfuðborg þeirra. Og ráðherrann sendi Lincoln þetta sím- skeyti: „Stofnið ekki lífi yðar þannig í hættu.“ Næsta dag fékk ráðherranna þetta svar: ,,Ég fékk skeyti yðar í gær, fór til Rich- mond og kom aftur hingað í morgun." En Lincoln hélt ekki innreið sína í höf- uðstað óvinanna með trumuslætti og stolti sigurvegarans. Nú átttu þessir óvinir líka að vera vinir hans og landsmenn. Og eng- inn í bænum skyldi verða þess var, að hann hældist um yfir ósigri þeirra. Hann hélt inn í borgina með fámennu fylgdarliði eins og óbreyttur borgari. Það varð uppnám í bænum, sérstaklega meðal negranna, sem lengi höfðu vonast eftir, að ,,Linkum“ forseti sigraði. Nú var hinn mildi lausnari" kominn. Hér gekk hann um göturnar eins og hver annar almúga- maður. Sumir negranna æptu fagnaðaróp, aðrir grétu; þeir voru allir utan við sig af gleði. „Kæri Jesús, ég þakka þér, að ég fékk að sjá Linkum forseta," hrópaði gömul negrakona og grét eins og barn. Þeir komu hlaupandi úr strætum og skotum, dansandi og fagnandi, veifandi höfuðfötum og klútum. Einu sinni settist Lincoln niður til að hvíla sig ögn. Þá kom til hans gamall negri; á meðan gleðitárin runnu niður vanga gamla svertingjans tók hann hatt- inn ofan og hrópaði: „Góður Guð blessi yður, Linkum for- seti!“ Lincoln stóð upp, tók ofan hattinn og hneygði sig kurteislega fyrir gamla mann- inum. Það var nærri liðið yfir hina hvítu í Richmond, já, það var sagt, að hefðarfrú ein hefði fallið í yfirlið við þessa sjón. Að hugsa sér, að æðsti hvíti maðurinn, sjálfur forset' Bandaríkjanna, heilsaði negra! Margir litu svo á, að hann hefði alveg eins getað tekið hattinn sinn ofan fyrir hundi eða svíni. En með þessari kveðju vísaði Lincoln á bug margra alda hleypidómum. Um ókomnar aldir þurfti enginn að vera fyrir- litinn af þeirri sök, þóttt hörundsliur hans væri ekki hvítur. Lincoln sýndi líka við mörg önnur tæki- færi, að hann virti negra jafn mikils og hvíta menn. Blaðamaður hitti Lincoln eitt sinn önn- um kafinn við að telja peningaseðla og lýsti undrnn sinni yfir því. „Jú,“ sagði forsetinn, „ég fæst ekki við þetta starf yfirleitt, en þannig er mál með vexti, að negri, sem er sendill hér í ráðu- neytinu liggur sjúkur. Hann er nú í sjúkra- húsi, en getur ekki fengið kaup sitt greitt, af því að hann getur ekki skrifað nafnið sitt. Nú hef ég útvegað honum peningana og hef lofað að láta þá sjálfur í umslag og skrifa utan á það, því annars er hann, þessi trygga sál, ekki viss um að hann fái þá.“ Nú stóð Lincocln á hátindi frægðar sinnar, virtur og elskaður af flestnm í Norðurríkjunum, tilbeðinn af negrunum og öllum, sem höfðu haft kynni af honum- Banaskot. Það sem er sorglegast við styrjaldir ei' að þær ala á hatri og hefndarhug. Og 1 borgarastyrjöldum festir hatrið dýpstai' rætur í mannssálunum. Það voru margh' menn í Suðurríkjunum, sem báru óslökkv- andi hatur til Lincolns. Hann hafði ger- breytt öllum lífskjörum manna í Suðui'- ríkjunum. Þess skyldi hefnt. 1 Norðurríkjunum var Lincocln tilbeð- inn, en Suðurríkjamenn kölluðu hann harð- 170 HEIMILISBLAÐlP

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.