Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.08.1982, Síða 10

Heimilisblaðið - 01.08.1982, Síða 10
Undir öllum kring-umstæðum myndi De- luze hafa kveikt ljósið og gefið húsráð- endum ofur einfalda skýringu á öllu sam- an, — hver hann væri, hvernig hann hefði villzt hingað inn. En nú var hann einu sinni ekki alveg allsgáður — og það hafði gripið hann ótti. Hann kveikti ljósið aftur, til að svipast um eftir stað þar sem hann gæti falið sig. Augu hans námu staðar við skápinn stóra. Hann opnaði hann í skyndingu — hann var galtómur. Þá slökkti skáldið ljósið, kom sér fyrir í skápnum og lokaði á eftir sér. Nú heyrði hann, að einhver kom inn í stofuna, og hjartað hamaðist í barmi hans. Það voru auðheyrilega tvær persónur. ,,Við skuluð reyna aftur,“ sagði karl- mannsrödd. „Það er vonlaust,“ sagði þreytuleg kven- mannsrödd. „Fullkomlega vonlaust. Ég af- ber þetta ekki lengur.“ „Tómt tal,“ sagði maðurinn hranalega, og eftir andartaksþögn hélt hann áfram: „Sú var tíðin, Yvonne, að þú barst traust til mín. Sú tíð, að við hétum því að segja hvort öðru sannleikann. Minnistu þess, Yvonne?“ „Já, Maurice," svaraði Yvonne hljóm- lausri röddu. „En það er langt síðan . . . svo langt, að við erum bæði búin að gleyma því.“ „Eg hef engu gleymt,“ sagði Maurice. „Og ég vil engu gleyma. Það verður að vera einhver fastur punktur í tilverunni — eitthvað, sem maður getur sett traust sitt á.“ „Það er það kannski,“ sagði hún. „Fólk verður að standa við loforð sín,“ hélt Maurice áfram og rödd hans varð aftur ákveðin. „Manstu það, að við hétum hvort öðru að deyja fremur en að svíkja ást okkar? Nú er ást þín dauð og búin að vera, en við bæði — við lifum. Ég hef ekkert svikið. Ég elska þig, og alveg jafn tak- markalaust og ég gerði þann dag sem þú varðst mín. Þú elskar mig ekki . . .“ „Það ákveður enginn, hvera hann elsk- ar eða hversu lengi ástin varir,“ greip Yvonne fram í fyrir honum. „En maður ákveður þó sjálfur hvort maður vill vera heiðarlegur, eða hvort mað- ur vill lifa í blekkingu og ósannindum,“ sagði Maurice. „Þú virðist hafa kosið það síðarnefnda. Nú varð löng þögn. Skáldið í skápnum heyrði hvert einasta orð af samtalinu. Hon- um var ljóst,.að þama var hann óviljandi orðinn áheyrandi að uppgjöri milli hjóna — og hann varð allur að eyrum. Eins og á stóð, hugleiddi hann ekki hið minnsta, hvernig hann ætti að komast aftur út úr húsinu. „Já, ég er ástfangin af öðrum,“ sagði Yvonne. „Við hétum hvort öðru trúfestu,“ sagði Maurice. „En þú hefur leynt mig því, að um annan mann væri að ræða, sem þú elsk- aðir. Ég viðurkenni það, Yvonne, að mað- ur ræður ekki við ástina. En maður á.að standa við það sem maður hefur lofað. Hvers vegna hefurðu þá ekki sagt mér þetta ?“ „Ég var hrædd,“ svaraði Yvonne eymd- arlega. „Þú ei*t svo skapbráður/ „Hver er hann þessi maður?“ spurði eiginmaðurinn. „Það skiptir ekki máli, hvað hann heit- ir; þú þekkir hann ekki,“ flýtti Yvonne sér að svara. „En þú krefst heiðarleika af mér . . . gott og vel, ég viðurkenni, að ég elska hann. Ég gæti gengið í dauðann fyrir hann.“ „Það gaztu líka mín vegna — einu sinni,“ gegndi Maurice bitur. „Við sórum, að við skyldum heldur deyja en að bregð- ast hvort öðru. En hvort okkar hefur svo brugðizt?" Nú kvað við skerandi óp kvenmannsins. „Maurice, — þú gerir þetta ekki!“ 94 HEIMILISB LAÐ I Ð

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.