Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.08.1982, Síða 15

Heimilisblaðið - 01.08.1982, Síða 15
útskýrði fyrir umsjónarmanninum hvað komið hafði fyrir. Margaret fannst þetta vera maður á aldur við Walter. „Við þurfum fjóra menn,“ sagði hann, „menn sem eru vel á sig komnir og vita eitthvað um fjallgöngur.“ „Ég hef klifrað í fjöllum,“ heyi'ði Marg- aret Walter segja. „Það hef ég líka gert,“ sagði þá Marg- aret við hina ókunnugu. „Og þekking á fjalllendi hefur jafn mikið að segja sem líkamsþrek,“ bætti hún við. „Ég er vön fjöllum. Ég get gengið yfir ísbreiðu, ef því er að skipta. Ég hef farið hálfa leið upp á Mont Blanc." „Margaret," sagði þá Walter, og þrýsti hönd hennar að sér. „Margaret, þú mátt ekki stofna lífi þínu í hættu." Ókunnu mennirnir gerðu hvorki að taka tilboði hennar né neita því. Fyrirliðinn sagði: ,-,Við þurfum á fólki að halda, sem er vant fjallgöngum.“ Síðan leit hann af mannskapnum og upp mót bröttum fjalls- hlíðunum. Þegar gengið var upp á hæðarsporðinn, mátti glöggt sjá hversu hátt var upp að fara og hættulegt. Hyldiúp gjá opnaðist áður en komið yrði að sjálfum undirhlíð- um Tecla; flugliál íshella virtist þekja fyrstu bröttu fjallsbrekkurnar. I fljótu bragði leit alls ekki út fyrir, að einmitt þarna væri skynsamlegast að leggja á fjall- ið. Auk þess var maísólin tekin að lækka á lofti. Brátt yrði hitinn kominn undir frostmarkið, og myrkrið myndi skella yfir. „Við verðum að gera ráð fyrir að minnsta kosti sex klukkustunda ferð upp til þeirra,“ sagði ókunni maðurinn. „Og aðrir sex tímar fara í það að komast til baka, ef við þurfum að bera einhvem með okkur. En það verður tunglskin í kvöld.“ Tilgangur leiðangursins myndi einmitt vera sá að sækja mann og bera hann til byggða, en þegar það rann upp fyrir lest- arfarþegunum drógu þeir sig í hlé, einn eftir annan, unz umhverfis manninn sem hafði stöðvað lestina stóðu aðeins þau Margaret og Walter. „Nafn mitt er Gampel. Ég er Svisslend- ingur, og þótt ég sé ekki með bréf upp á það, að ég sé vanur fjallgöngum, þá held ég, að ég muni geta klifið þetta fjall.“ Walter kinkaði kolli til hinna og sagði: „Við gerum hann að fararstjóra leiðang- ursins.“ Annar maður gaf sig til kynna. „Nafn mitt er Milrane,“ sagði liann við Sviss- lendinginn og rétti honum og Walter hönd- ina. „Fáum við ekki fleiri ?“ „Getið þið haft gagn af mér?“ spurði Margaret, en þegar hann hristi höfuðið, sneri sér að Walter. „Ég vil fara með ykkur, eins langt og ég kemst.“ „Já, það veit ég að þú vilt,“ sagði hann og sneri sér síðan að Milrane til að aðstoða hann við undirbúninginn. „Ég get náð í teppi úr svefnvagninum," sagði hann. „Og mat og viskí. Við verðum einnig að hafa brennsluspritt með til að bræða snjóinn. Auk þess verðum við að hafa ketil.“ „En hvað um reipi?“ spurði Milrane. Lestarstjórinn hét því að leggja til það sem þyrfti, auk axar, en Margaret sneri aftur að farrýmisvagninum til þess að búa sjálfa sig undir förina. Tuttugu mínútum síðar hélt járnbraut- arlestin för sinni áfram en hún átti að nema staðar við fyrsta hliðarspor, nokkr- um kílómetrum lengra, og skilja þar við sig svefnvagn með fjórum eða fimm far- þegum sem ekki gætu tekið þátt í leið- angrinum, en ætluðu sér að bíða eftir hin- um og sjá til, hvort þau gætu ekki orðið til einhverrar aðstoðar. íklædd hlýjustu peysunni sinni og ullar- reiðbuxunum, og með þvkk gúmmístígvél á fótum fylgdi Margaret í slóð Walters, sem gekk á eftir Milrane yfir gjána. Sviss- lendingurinn gekk aftastur, það var Gain- pel. Hvei*t þeirra hélt á samanvöfðum HEIMILISBLAÐIÐ 99

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.