Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.08.1982, Qupperneq 20

Heimilisblaðið - 01.08.1982, Qupperneq 20
VASKLEIKASTELPA BARNASAGA EFTIR GERDA E. HANSEN Elísabet var fallegasta sólskinsbarn sem maður gat hugsað sér. Tvær langar og ljós- ar fléttur, sem enduðu í tveim krullum, þannig að ekkert barn þurfti til að halda þeim saman; tvö stjörnu-augu, sem horfðu beint á mann; nettur munnur, sem alltaf var brosmildur. En þrátt fyrir engilsásjón- una og aðeins tólf ára aldur, var Elísabet óvenjulega framtökssöm stúlka. I skólan- um átti hún það til að standa fyrir brell- um, sem voru að gera kennara hennar grá- hærða, og þegar hún kom oft og einatt heim með kúlu á höfðinu eða rifinn kjól, stundi móðir hennar og sagði: „Beta mín, þú hefðir átt að verða strákur!“ Nú var komið sumarfríið, með aLlri sinni eftirvæntingu og gleði, og nú átti Elísa- bet að fara í sveit í fyrsta skipti. Ættingj- ar móður hennar höfðu boðið henni að koma og dveljast hjá sér Þau áttu stóra jörð á Mið-Sjálandi, þar sem var meðal annars gamall blómagarður, mikil tún og engi, já, sannkallað ævintýraland fyrir Kaupmannahafnar-telpu. Með alls konar góðum ráðleggingum, og ekki með öllu kvíðalaus, sendu foreldrarn- ir hana af stað. Elísabet komst heilu og höldnu á áfanga- staðinn í sveitinni. Tekið var á móti henni á brautarstöðinni með vagni, sem spennt- ir voru fyrir tveir stórir og dökkjarpir hestar, og öllu þessu stjórnaði Max, sem lítið virtist gefa hestunum eftir að stærð og kröftum. Þetta olli Elísabetu nokkrum vonbrigðum, því að hún hafði gert sér vonir um að verða sótt í bíl með einka- bílstjóra, svo að hún hefði getað grobbað af því við skólasystkini sín, en hún var reyndar fljót.að gleyma vonbrigðunum við allt það nýja. og nýstárlega sem hún brátt sá. Þar sem hún var nú sezt við hliðina á Max, fékk Jiún að heyra um kirkjur þær og bændabýli sem þau áttu leið framhjá til áfangastaðarins. Þarna var kirkjan með tvíburaturnunum, sem reist var til heið- ui*s Absalon, og þarna var stórbýlið En- lerup með sinni frægu vindmyllu, og svo framvegis, og svo framvegis. Hann kunni svo sannarlega að segja frá, að maður gleymdi því hvað tímanum leið — og sömu- leiðis því, hvað í rauninni Max var bæði mikill um sig og ófríður maður. Fyrr en varði var Engi komið í ljós, en svo hét bærinn sem þau voru að fara til, og svo óku þau heim traðirnar og námu staðar fyrir bæjardyrum, þar sem Óli og Soffía stóðu og biðu gests síns. Að aflokinni móttöku, koss á kinn og enni, var Elísabetu fylgt upp í litla her- bergið þar sem hún átti að búa á meðan hún dveldist á bænum. Þarna átti hún nú að hvíla sig, þangað til kallað væri í kvöld- matinn. — Já, hvíla sig — eins og hún væri eitthvað þreytt? — nei, það var nú eitthvað annað. Hún flýtti sér hins vegar úr kápunni sinni og rauk síðan út, til þess að skoða sig um. Fyrst af öllu hitti hún stóran og feitan kött, sem lá og sleikti sól- skinið. Hún var óðara rokin til hans, tók í framfætur hans og steig við hann dans- spor, Max til mikillar gleði, sem stóð þarna í innkeyrslunni og hló svo að undir tók. Elísabet hafði strax eignast vin þar sem Max var. Honum hafði strax litizt vel á 104 HEIMILISB LAÐ I Ð

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.