Hljómlistin - 01.03.1913, Síða 7

Hljómlistin - 01.03.1913, Síða 7
HLJÓMLISTIN 47 Nálega á hverri sanikomu er meira og minna sungið, og er |iað skoðað sem sjálf- sagður hlutur. Fáir eru hér, sem kalla má reglulega vel að sér í söngfræði, og helzt engir, sem nokkuð verulegt vita í hljómfræði, og kem- ur það sér afar-illa. — Prátt fyrir það og annað, sem að kann að vera, vona eg þó, að hér muni ætíð búa söngelskandi fölk. Bréfkaflar. Úr Strandasýslu. ------»Harmonium eru í Kollafjarðar- neskirkju og Árneskirkju. í Kollafjarðarnes- kirkju frá Kimbolt í Chicago, með þreföldu hljóði, 4, 8 og 16 ióta, og kostaði 450 kr. hingað komið, — en í Árneskirkju frá Hö- rúgel i Leipzig, með þreföldu hljóði, og kostaði tæpar 400 kr., útvegað af Jóni Pálssyni. — Organistar við kirkjurnar eru: Sigurgeir Ásgeirsson við Iíollafjarðarnes- kirkju, en Pélur Guðmundsson í Ófeigsíirði við Árneskirkju. — Orgel er búið að vera 4 ár í Kollafjarðarneskirkju, en 3 ár í Ár- neskirkju. — Af þvi nokkur söngþekking hefir breiðst út frá barna- og unglinga- skólanum á Heydalsá, þá má söngur tel- jast fremur góður i Kollafjarðarneskirkju, eftir því sem gerist i sveitakirkjum; en í Árneskirkju eru aftur fremur litlir söng- kraftar, er stafar líka af strjálbygð, að eigi mætir við messu sönglólk langt i burtu. í þremur kirkjum: óspakseyrar-, Staðar- og Kaldrananeskirkju, eru engin orgel og söngur lélegur og á hriplingabjörgum með forsöngvara. Söngþekking svona yfirleitt er ekki gotl að segja hvort sé góð, lakleg eða i meðal- lagi, samanborið við önnur pláss, þvi að kunnugleik hrestur mig til þess, að dæma um það. Söngþekking hefir helzt breiðst úl l'rá skólanum á Heydalsá hér um mið- sýsluna, og þar lærði organistinn við Ár- neskirkju. Einstakir menn eiga og har- monium heima hjá sér, t. d. eru 2 i Ó- spakseyrarhreppi, 1 í Kollaiirði, 1 í Hról'- bergshreppi og 4 i Árneshreppi. Önnur hljóðfæri eru eigi nema harmonikur og grammófónar og svoleiðis gargskjóður. Langspii eru nú alveg fallin úr sögunni, síðan menn fóru að venjast harmonium. Fyrsla harmoniið lcorn liingað i miðsýsl- una að Heydalsá til Sigurgeirs Ásgeirssonar, árið 1897; siðan hafa þau verið að smá- tinast inn í sýsluna.«------- Nýdáinn er í Kaupmannahöfn Christian Barnekow, merkur söngfræðingur og tón- skáld; hann andaðist á skirdag (20. þ. m.) eftir viku banalegu. Barnekow var kom- inn af gamalli, danskri aðalsætt og fæddur 28. júlí 1837 í St. Sauveur, smábæ einum suður í Pýreneafjöllum á Frakklandi, en kom tveggja ára til Danmerkur og ólst þar upp siðan. Þegar hann hafði tekið stúdentspróf, helgaði hann alt starf sitt upp frá þvi sönglistinni og liggur mikið eftir hann af lónverkum, enda er hann talinn með merkari tónskáldum Dana og einhver hinn fjölhæfasli. Hann fékk pró- fessors-nafnbót 1891 og hefir um langan tíma verið formaður i ýmsum merkustu söngstofnunum Dana. Hér á landi mun hann vera kunnastur fyrir »kóralbók« sina, sem fyrsl kom út 1878 og siðan hefir verið gefin úl nokkrum sinnum (4. útg. 1899).

x

Hljómlistin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hljómlistin
https://timarit.is/publication/435

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.