Í uppnámi - 20.03.1901, Qupperneq 10
18
hugsar sér að koma í veg fyrir það með því að leika öðrum manni
(drottningarriddara) þannig, að hann ráði d4.
4. d2—d4 e5 X d4 Jf
5. c3 X d4 Bc5 X d4
Nú liafið þér leikið án þess að hugsa yður vel um. Þriðji leikur liins
svarta B,b8—C6 var klaufalegur, og gaf yður tækifæri til að vinna yður
mikið í haginn, en þér notuðuð það ekki, og misstuð í staðinn gott
peð, en fenguð ekkert fyrir. Grætið nú að, svar yðar upp á þriðja leik
hans (4. d2—d4) var nógu gott, en er hann tók peð yðar með sínu
peði (þ. e. 4.., e5 x d4), þá hefðuð þér eigi átt að drepa aptur hans
peð (5. c3xd4), heldur hefðuð þér átt að leika 5. Bc4xf7j-, og þá hefðu
leikirnir líklega orðið þannig:
5. Bc4xf7f 5. Ke8xf7
6. Ddl—h5f 6. Kf7—f8
7. Dh5xc5f
Við þessa breytingu sjáið þér, að svart hefur misst peð kongsbiskups
og það, sem verra var, hann hefur tapað réttinum til að hróka,
af því að hann var neyddur til að flytja kong sinn. Að vísu liafði
hann í bili unnið biskup fyrir peð, en það var augljóst, að hann lilaut
einnig að missa biskup, er þér lékuð 6. Ddl—li5f. Að vísu þurfti
hann eigi að drepa biskupinn með konginum, enda þótt hann yrði að
flytja konginn, en þér hefðuð þá getað leikið 6. Bf7 x g8 og fengið
hetri leik.
En nú skulum við halda áfram tafiinu eins og það var:
6. Rgl—f3 Dd8—f6
Að færa riddarann var góður leikur; þér ógnið eigi að eins honum með
því að taka biskupinn, heldur losið þér einnig reitina milli kongs
og hróks hjá sjálfum yður, og fáið nú færi á að hróka, er þér þurfið.
Svart hefði gjört betur í að hörfa aptur með biskupinn, í stað þess að
valda hann með svo góðum aðalmanni, sem drottningunni; hann hefði
átt að leika 6..., Bd4—b6.
7. Rf3xd4 Df6xd4
Báðir hafa leikið vel nú síðast. Þér hafið gjört rétt í að drepa biskup
hans, því að hann stóð á peði drottningarriddarans; og svart lék rétt,
er það drap með drottningunni en eigi með riddaranum, af því að
hann hafði einu peði fleira og hafði hag af því að fara í drottningakaup.
8. Rbl—d2 Rg8—f6
Þér hafið leikið rétt, þar sem þér fóruð eigi í drottningakaup, en
völduðuð biskup yðar og kongspeð, sem báðum var hætta búin af
drottningu mótstöðumanns yðar; en þér hefðuð getað gjört allt þetta
án þess að hindra gang nokkurs af mönnum yðar, með því að leika
8, Ddl—e2; en eins og taflið stendur núna, hindrar riddarinn algjörlega
J