Í uppnámi - 20.03.1901, Page 11
19
drottningarbiskup yðar í'rá að komast út á borðið. Svart fer rétt að,
er það færir annann mann þannig, að hann stendur á konungspeði yðar.
9. f2—f3 Rc6—e5
Þar sem þer völduðuð kongspeð yðar með peði kongsbiskupsins,
gjörðuð þér glappaskot, sem er mjög algengt hjá byrjendum; þegar
þér hafið fengið meiri æfingu, munuð þér sjá, að það er sjaldan gott
að leika f2—f3, og í þetta skipti hafið þér komið í veg fyrir að þér
getið hrókað að minnsta kosti fyrst um sinn, af því að drottning
mótstöðumannsins ræður reitnum (gl), sem kongur yðar ætti að standa
á, ef hrókað væri. Seinasti leikur hins svarta var rnjög hyggilegur.
Hann setur aptur mann á biskup yóar og um leið kemur hann
drottningarriddaranum og kongsriddaranum í samvinnu á móti liði yðar,
þar sem það er veikast fyrir.
10. b2—h3 Dd4xal
Hvaða dauðans vitleysa er þetta, sem þér gjörið! Þér hafið verið
hræddir um biskupinn, sem var í hættu, og þér þorðuð eigi að hörfa
aptur með hann til b3 af hræðslu fyrir því, að riddari mótstöðumannsins
mundi skáka á d3, og svo hafið þér komið drottningarhrók yðar í
uppnám! Svart drepur hann auðvitað, og þar eð hann hefur orðið
fyrir slíku happi, ætti liann auðveldlega að geta unnið.
11. 0—0 (þ. e. konungurinn er færður á gl
og hrókurinn á fl).
11.................. Re5xc4
12. Rd2 x c4 0—0
13. Ddl—d2 c7—c5
Seinasti leikur yðar var mjög góður; þör liatíð séð, að svart gjörði
glappaskot, þar sem hann ekki liörfaði undan með drottninguna jafn-
skjótt og hann hafði drepið hrók yðar, og þér hafið fastráðið, ef
mögulegt væri, að koma í veg fyrir, að hún sleppi í burtu, með því
að fá ráð yfir öllum reitunum, sem hún getur farið á. Svarti sér
hættuna og leikur 13..., c7—c5, til þess að bjarga drottningunni
með leiknum 14...., Dal—d4f.
14. Bcl-—b2 Dalxa2.
Þarna lékuð þér biskupnum á réttum tíma. Hann hindrar að vísu
eigi drottninguna frá að sleppa undan í fyrsta eða öðrum leik, en
hann veitir yður færi til atlagna og til þess að fá ráð yfir miklum
hluta reitanna.
15. Dd2—g5 Rf6—e8
Mjög vel leikið hjá báðum. Er þér lékuð Dd2—g5, ógnuðuð þér með
að drepa riddara hans þegar í stað með biskupi yðar, sem liann gat
eigi drepið á eptir (með g7 X f6) án þess að kongur lians stæði í skák.
En í stað þess að gjöra þetta, hefðuð þér getað leikið 15. Rc4—a5