Jólabókin - 24.12.1910, Blaðsíða 46

Jólabókin - 24.12.1910, Blaðsíða 46
Hólaminningar. Eflir Mattht Jochumsson. ULLVEL man eg flmtíu ára sól, fullvel man eg hálfrar aldar jól, man það fyrst, er sviftur allri sút sat eg barn með rauðan vasaklút. Kertin brunnu bjart í lágum snúð, bræður fjórir áttu ljósin prúð, mamma settist sjálf við okkar borð; sjáið, ennpá man eg hennar orð: wPessa hátíð gefur okkur guð, guð, hann skapar allan lífsfögnuð; án hans gæzku aldrei sprytti rós án hans náðar dæi sérhvert ljós. Þessi ljós, sem gleðja ykkar geð, guð heflr kveikt, svo dýrð hans getið séð; jólagleðin Ijúfa lausnarans leiðir okkur nú að jötu hans«. Siðan hóf liún heilög sagnamál, himnesk birta skein í okkar sál; aldrei skyn né skilningskraftur minn skildi betur jólaboðskapinn.

x

Jólabókin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jólabókin
https://timarit.is/publication/437

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.