Jólabókin - 24.12.1920, Page 18

Jólabókin - 24.12.1920, Page 18
16 til barnsins í jötunni, — hans, sem var Freslari heimsins, sigurvegari syndarinnar og dauðans. Stjarnan er Guðs heilaga orð. Það leiðir aldrei afvega, þegar við hlýðum því í trú. Farðu eftir því — og þú munt finna barnið í jötunni. Og þegar þú hefir fundið það, þá fylg þú því frá Betlehem til Golgata; fylg þú Frelsaranum í kærleik hans til mannanna og í takmarkalausu trausti hans til hins himneska föður. Og þegar þú ert kominn með honum um Sársaukaveginn til Golgata, þá tak þú kross- inn þér á herðar, þann kross, er Guð réttir þér. Nú leit Förumaðurinn blíðlega og hræður á kon- unginn. Vegur lífsins liggur ekki til himins fyr en eftir að vegur krossins er honum sameinaður. Og Himinvegur- inn liggur um Golgata — einnig fyrir þig, herra konungur. Og fyrirheit um Paradís fáum við ekki, fyr en við komum til Golgata, eins og ræninginn — og í raun og veru erum við allir ræningjar, er unnið höfum til eilífs dauða. En frá -Ðetlehem liggur leiðin, um Golgata til Paradísar. — — — Förumaðurinn talaði af kunnugleik um vegina, eins og hann hefði sjálfur verið við jötuna og krossinn; og hann hóf skýru og blíðlegu augun, eins og sá, er eygir leiðar-endann við himins' hlið og þráir sjálfur þangað. — Og þar heima munum við ekki að eins finna Hann í hvers fótspor við reyndum að feta, heldur og alla vini vora, er gengu hinn sama veg. Þar munt þú einnig, herra konungur, finna hana, sem þú nú harmar og þráir svo heitt. Þá þarft þú ekki framar að láta þér nægja að eiga hana að eins í endurminningunni, heldur fær þú þá aftur að horfa í blíðu augun hennar, heyra hugþekk

x

Jólabókin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jólabókin
https://timarit.is/publication/437

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.