Jólabókin - 24.12.1920, Page 30

Jólabókin - 24.12.1920, Page 30
28 uðu fyrir þeim vængjahurðir. Tók nú við salur, og voru veggir hans rósum prýddir, en húsgögn voru úr gulli og skreytf silki. Þaðan gengu þau inn í annað herbergi jafnfagurlega búið. Þar héngu kristallsspeglar á veggjum,. og stólar og borð voru úr rósaviði og marmara. Gljúp- ar gólfábreiður létu undan fæti, er stigið var á þær„ Hingað og þangað í herberginu var dýrindisskraut. Stór garður var fyrir utan kastalann. Þar voru gripa- hús. Einnig voru þar kýr og hestar. Þar voru og áhöld in ágætustu. Gegnt þessum garði var skrautgarður. Uxu þar fögur aldirii og fásén blóm. Enn fremur voru þar akrar og beitilönd. Þar voru nautgripir, hreindýr og kindur á beit. Hér var flest, sem hugur girntist. »Er það nú ekki alt gott og blessað?« sagði húsfreyja.. »]ú«, ansaði bóndi hennar, »en þú verður ekki ánægð,. nema meðan góði gállinn er á þér. Svo vilt þú fá eitt- hvað í viðbót«. »Við skulum hugsa okkur um«, ansaði húsfreyja. Og þau gengu til hvílu. Nokkrum morgnum seinna fór kona fiskimannsins snemma á fætur. Það var um affureldingu. Hún horfði út um gluggann og stakk höndunum í síður sér. Henni þótti landið umhverfis fagurt. Bóndi hennar svaf væran. »Vakna þú, bóndi minn, og komdu út að glugganum«, sagði konan alt í einu. »Horfðu út! Ættir þú ekki að verða konungur yfir öllu þessu fagra landi? Og þá yrði ég drotning. Farðu og findu fiskinn og segðu honum,. að mig langi til að þú verðir konungur«. »Hvað er þetta, kona! Ég hefi ekkert að gera me5 að verða konungur! Mér er ekki hægt að biðja um þetta«. . »Nú, en þó að þú kærir þig ekki um að verða kon-

x

Jólabókin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jólabókin
https://timarit.is/publication/437

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.