Jólabókin - 24.12.1920, Side 43

Jólabókin - 24.12.1920, Side 43
41 afarreið og kvaðst mundi syngja um kveldið »að eins til að sýna og sanna það, hve mikill erkiasni læknirinn væri«_ Læknirinn lét sig það einu gilda — en sendi 60 dollara reikning fyrir skoðunina. [Etelka Gerster er ungversk söngkona (Sopran) fædd 1855]. IV. Deethoven og „svínin". Sá leiði ósiður er gamall — og því miður ekki útdauð- ur enn, að menn sitja á hljómleikum með háværu skrafi og skeggræðum, rétt eins og hljóðfæraslátturinn sé ekki til annars en að breiða yfir skvaldrið og skarkalann. Þetta verða »hinir smærri postular« listarinnar að gera sér að góðu. Þeir eru svo háðir hylli áheyrendanna. En öðru máli er að gegna um »hina stærri« — svo sem til dæmis Hándel. Og þó er það einkum Beetho- ven, sem ekki skóf utan af andmælunum gegn þessum hvimleiða ósið. Það var eitt sinn er hann var að leika »duett« með Ries í höll Browns greifa í Wínarborg, að aðalsmaður nokkur og hefðarkona trufluðu hann með háværum sam- ræðum. Beethoven lét fyrst sem hann heyrði það hvorki né sæi. En er þau höfðu skvaldrað um hríð, tók hann alt í einu viðbragð mikið, þreif í Ries og mælti hátt, svo að heyrðist um salinn: »Eg spila ekki lengur fyrir þessi svín«. Og hann fékst ekki til að spila þar meira, hvernig sem að honum var farið. Þetta hefir honum verið lagt út sem ókurteisi. En þá

x

Jólabókin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jólabókin
https://timarit.is/publication/437

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.