Jólabókin - 24.12.1920, Side 62

Jólabókin - 24.12.1920, Side 62
60 nótur, sem hann hefir ekki áður séð. Það er skemst frá því að segja, að hann leikur nú lítalaust, eða því sem næst »Wohltemperiertes Klavier« eftir Bach. En þeir sem tónsmíð þessa þekkja, vita hve afar-erfitt viðfangs- efni hún er. Honum til uppörfunar hefi eg leiðbeint hon- um í hljómfræði og ennfremur kom eg á framfæri til prentunar tónsmíð, er hann hefir samið. Þessi ungi snill- ingur þarfnast þess, að hann sé styrktur til hljómleika- ferðalaga. Því að mínum dómi á hann fyrir sér að verða annar Wolfgang Amadeus Mozart«. Beethoven naut tilsagnar Neefe til 1787. Fór hann á þeim árum ýmsa hljómleikaleiðangra. Og þó hann feng- ist þá aðallega við kenslu, rækti hann með mikllli alúð og vandvirkni starf sitt sem aðstoðar-organleikari við St. Regimakirkjuna. En stöðu þá hafði Max Franz kjör- fursti útvegað honum með miklum erfiðismunum. Meðan Beethoven var í hljómleikaleiðangrinum til Vín- ar, 1787, sem um getur hér að framan, þá er hann hitti Mozart, frétti hann um veikindi móður sinnar. Hafði hann annars ætlað að dvelja í Vín um tima, en tók sig þegar upp og fór heim, — því að móðir hans var hon- um mjög hjartfólgin og hafði hann verið aðalstoð heimil- isins síðustu árin. Komst hann heim rétt áður en hún skildi við. Var honum móðurmissirinn því nær óbærilegur. Má nokkuð marka tilfinningar hans og þ>að, hve innilega honum hefir þótt vænt um hana, af orðum sjálfs hans í bréfi til kunningja hans, Dr. Schaden: »Hún var elsku- leg móðir, svo ástúðleg, að enga móðir get eg hugsað mér ástúðlegri. Enginn getur gert sér í hugarlund hver unaður mér var í því fólginn, að geta kallað á »mömmu«, meðan hún gat heyrt til mín. En hvert á eg nú að kalla, eða hvern -get eg nú ávarpað orðunum elskulegu: »mamma mín?«

x

Jólabókin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jólabókin
https://timarit.is/publication/437

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.