Heimir - 01.09.1909, Síða 7
HEIMIR
3
Og enn sé kært aö kveöa og heilsa þér!
og kveldsól mín skal setjast enn í heiöi
er hinzt til viöar veröld gengur mér
í vestri, undir þínu gróna leiöi.
Svo helgast leiö að lík-kistunni minni
og Ijóöiö liinzta af minningunni þinni.
16-7-09 Steþhan G. Stephanssvn
ÚTGEFENDA SKIFTI
Með þessu, fyrsta blaöi sjötta árgangs “Heimis” eru orðin
eiganda og útgefanda skiftis. Menn þeir er fyrir nokkrum árurn
síðan mynduðu hlutafélag blaðsins hafa nú ýmist gefið eða selt
eignir sfnar í blaðinu til Unítaríska Ivyrkjufélagsins Islenzka, og
verður það því framvegis gefið út undir umsjón og í umboði
þess. Breyting þessi á högum blaösins þótti næst um sjálfsögð,
þó fyrr hefði komið. I flestu hefir blaðið reynt að styrkja
stefnu únítaríska hreyfinga að því litla leyti er áhrifa þess gætti,
og það, var verkinu vaxiö. Þótt ritgjörðir og málsgreinar þess
á liðnvm tíma hafi verið um ýmiskonar efni, þá hefir þó Heimir
altaf aðeins átt eitt málefni. Og þetta eina málefni var, og er,
trúarviðsýni og hugsanafrelsi—“ Unitarianism.” Það var því
eiginlega óviðurkvæmilegt að nokkrir einstaklingar héldi úti
blaði á eigin ábyrgð, fyrir þetta mál, er var kyrkjufélagsins
sjálfs að annast. Enda líka var tilraun þeirra misskilningi háð
meðal margra er álitu únítarískan félagsskap það sízt varða
hvert blaðið þrifist, útbreyddist eða félli. Rétt var það þá að
kyrkjufélagið tæki við blaðinu eiusog líka er orðið.
Með eigenda og útgefenda skiftunum hafa og orðið ritstjóra
skifti. Verður það framvegis falið, þar til kjiirinni nefnd, á
hverju kirkjuþingi að velja ritstjóra' blaðsins og sjá um útkomu
þess. í stað þess er verið hefir, er Sfra Guðm. Árnason valin