Heimir - 01.09.1909, Blaðsíða 11

Heimir - 01.09.1909, Blaðsíða 11
H E I M I R 7 3. Viðhald og útbreiðsla .tímarits til styrktar málefninu. Utgáfa bóka til notkunnar við guðþjónustur og sunnudagaskóla. Eftirfarandi bækur eru að verða æ nauðsynlegri og nauðsynlegri fyrir starf vort : (a) Hand og sálinabók til nota fyrir söfnuðina. (b) Handbók fyrir sunnudagaskóla. (c) Myndaspjöld og lexíurfyrir sunnudagaskóla byrjendur. (d) Kenslubók eða leiðarvísir, sem foreldrar og sunnudaga- skóla kennarar gætu notað við uppfræðslu barna í aðalatriðum trúar vorrar og, sem mætti notast við undirbúning unglinga til staðfestingar og inntöku í safnaðarfélögin. 4. Að Ameríska Unitarafélagið aðstoði kyrkjufélagið í út- gáfu þessara rita með beinni fjárveitingu, er skoðuð sé sem lán til kj'rkjufélagsins og endurgjaldist til unitarafélagsins innan tíu ára, eöa eins lljótt og fé fæst, ineð samskotum og sölu þessara rita. 5. Að hin íslenzka trúboðsnefr.d sé ráðgefandi í öllum málum er viðkoma kyrkjufélaginu eða hinum sérstöku söfnuðum þess, og að henni sé faliö á lletidur stjórn íslenzka trúboðsins undir beinni umsjón framkvæmdarvalds ameríska unitarafélag- sins. Tillögur þessar var samþykt að birta í Heimir. Skrifara hafði borist bréf frá nokkrum hluta Gimli safnaðar þess efnis, að sá söfnuður segði sig úr íögum með hinu íslenzka unitariska kyrkjufélagi, vegna einræðisstjórnar, er fram hefði komið í því félagi. Bréf þetta var lesið upp og síðan var eftir- farandi fundarsamþykt gerð. Þar sem fundarsamþykt Gimli safnaðar viövíkjandi sam- bandi hans'við kyrkjufélagið er, að því er vér álítum, bygð á röngunr skilningi á hinni nýju tilhögun amerísku unitarafélagsins á trúboði meðal Vestur-Islendinga, þá eru það vinsamleg til- rnæli vor að Gimli söfnuður taki þetta mál til frekari íhugunar. Afrit af tillögunum sendist söfnuðinum með þessaii fundar- samþykt.

x

Heimir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimir
https://timarit.is/publication/440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.