Heimir - 01.09.1909, Blaðsíða 14

Heimir - 01.09.1909, Blaðsíða 14
IO H E I M I R Mótmælendafélagið á Þýzkalandi Mótmælenda félagiö (Protestantenverein) svo nefnda var stof- naö í Eisenach á Þýzkalandi áriö 1865. Ariö áöur hafSi þáver- andi páfi Píus níundi sentút umburöarbréf meö mótmælum gegn vísindalegum rannsóknum í trúmálum. Tilgangur stofnenda félagsins var, aö vinna á móti afturhaldsanda og bókstafstrú katólsku kyrkjunnar á þýzkalandi. Þegar í byrjun gengu margir nafnkendir menn í félagiö og þaö útbreyddist um alt Þýzkaland á skömmum tírna. Nokkru eftir aö félagiö var myndaö sameinuöust önnur eldri félög, er höföu veriö stofnuö um miöja 19 öldina í því skyni aö vinna aö sameiningu lútersku ög endurbættu kyrknanna á þýzkalandi, mótmælenda-félagiun og tóku upp nafn þess. Félagiö hélt áfranr starfi sínu í frjáls- lyndisáttina, og mætti þarafieiöandi mótspyrnu og óvináttu frá afturhaldsprestum og stjórnendum mótmælenda kyrknanna sjálfra. Nokkrir frjálslyndir prestar mistu embætti sín. Viö þessa mótspyrnu hnignaöi félaginu nokkuö, sérstaklega eftir aö ný hreyfing, er vildi afnema allar heimspekis skoöanir úr trúar- brögöunum og hverfa til eintómrar trúartilfinningar í anda Lúthers, reis 'upp. Þessi stefna var mótmælendafélaginu, er iagöi aðal áherzluna á skynsamiegar skoðanir, andstæö og bar því skort á trúarhita á brýn. En félagið hefir þrátt fyrir þessar rnótspyi nur haldiö uppi merki frjálslyndisins og rannsóknarinnar í þýzku kirkjunni, og þaö heldur áfram starfi sínu í þá átt aö samrýma trúarbrögö viö vísindalega þekkingu nútímans meö mjög góöum árangri. Séra Max Fischer, doktor í guöfræöi, frá Berlín lýsti til- gangi félagsins á þessa leiö í ræöu, sem hann hélt í Boston í fyrra á alþjóða fundi unitara og annara frjálslyndra manna: “ Mótmælendafélagið hefir nýja þroskun mótmælenda trúar- innar fyrir augum, sem er sú. aö ávextir trúarinnar veröi ekki aö uppbyggja kyrkjustofnanir, heldur aö vinna verk guös í heiminum, aö lífiö veröi ekki lengur skoöaö frá sjónarmiði yfir-

x

Heimir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimir
https://timarit.is/publication/440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.