Heimir - 01.09.1909, Qupperneq 22
18
H E I M I R
BÖKAFREGN
Fyrsta og annaö bindiö af hinni nýju ljóöabók Stefáns G.
Stephanssonar, “ Andvökur ” eru komin hingaö vestur og eru
til sölu víösvegar. Bókin er gefin út á kostnaö nokkurra íslend-
inga í Vesturheiini, en prentuð heima í Reykjavík. Frágangur
allur er góður, nema bandiö, sem er varla nógu vandað. Það
þarf ekki að efa að ljóð Stephar.s G. Stephanssonar eru Vestur-
Islendingum kærkominn gestur. Hann er ekki einungis bezta
skáld vor Vestur-Islendinga, heldur eitt af stórskáldum allrar
íslenzku þjóðarinnar, og aö ýmsu leiti allra vorra skálda ein-
- kennilegastur. Á kvæöin veröur betur minnst í næsta blaði.
Vonandi er aö allir bókavinir kaupi bókina og sýni meö því
skáldinu sjálfu og útgefendunum veröskuldaða viðurkenningu.
Önnur bók nýkomin að heiman, sern síöar verður minnst á
í Heimir er “Austurlönd,” trúarbragðarsaga Austurlanda eftir
Ágúst Bjarnason, Þá bók ætti hver maður að lesa, sem vill fá
vísindalegt og óhlutdrægt yfirlit yfir helztu trúarbrögð heimsins.
ÞRUMUVEÐUR
EFTIR PETKR ROSEGGKK
Hún var bálreið. Enginn hafði séð hana jafn reiða áöur,
þessa góðlyndu stúlku. Bróöir hennar, aöstoðar presturinn,
hugsaði með sjálfum sér : því betra sem reiöin er meiri en ástin,
henni gengur þá betur aö sætta sig við það.
“Nú fer ég,” hrópaði hún, og þreif brúna sjalið sitt og
kastaði því einhvern vegin um herðarnar.
“Hvert ætlarðu ? ” spuröi presturinn.
“Hvert skyldi ég ætla ?—Til hans. ”