Heimir - 01.02.1910, Blaðsíða 8

Heimir - 01.02.1910, Blaðsíða 8
128 'H E I M I R menn hafa nokkurn tíma haft áöur, og hver kynslóö mun finna betur og betur hvaö hún á undanfarandi kynslóö aö þakka. Tilfinningar þær er mest hvetja tnenn til góöra verka eru kærleikur og von. Trúin ætti aö gefa þessum tilfinningum frjálsara og ótakmarkaöra svigrúm en hingaö til hefir átt sér stað; þá mundu kærleikur Og von sameinast áhrifa miklum, hjálpandi, sýnilegum, verulegum og áþreifanlegum verkum og breytni. Þegar einhver rnaöur finnur áreiöanlega lækningu, viö heilahiinnubólgu, sjúkdónti, sem lækriisfræöin vissi ekkert ráö viö fyrir nokkrum árum síöan, meö því að nota í sambandi viö uppgötvun á lyfi,hugmyndir og aðferðir, sem hafa veriö fundnar upp og reyndar af öörum mönnum, er hafa veriö aö rannsaka aöra sjúkdóma, þá gerir hann kærleiks verk; hann kernur í veg fyrir aö ótal mörg ástarbönd slitni f framtíöinni og leggur traustan grundvöll fyrir vonir um margar slíkar blessanir fyrir kynslóöir framtíöarinnar. Trú framtíöarinnar mun reynast, og hefir reynst, jafn áhrifamikil og nokkur hinna eldri í því aö fylla hjörtu manna ineð ást og hjálpfýsi til annara.—Og þaö er hinn sanni tilgangur og markiniö allrar heirnspeki og allra trúaibragða, því þaö er vegurinn til aö gera menn betri og sælli, þjóninn jafnt og þann, sem þjónaö er. Framtíðartrúin mun hafa þá kosti að vera almenns eölis og samrýmanleg viö þekkingu og vald mannanna yfir náttúrunni. Eins og trú barnsins er nauösynlega mjög ólík trú fullorðins manns, og veröur aö vaxa ineö barninu, þannig veröur trú mannflokks, sem vex fljótt aö hæfileikuni, aö hafa möguleika til aö vaxa aö sama skapi. Trú hvers einstaklings ætti að vaxa með honum alla leiö frá barnæsku til fulloröins ára, og hiö sama gildir fyrir trú mannflokksins. Það er ílt fyrir hverja þjóö aö standa í stað hvaö stjórnfræðislegar hugmyndir og aðferðir snertir, eöa í atvinnustofnunum sínum, eöa nokkurri list eöa iön, jafnvel hinum elstu: en það er miklu verra fyrir þjóð aö standa í stað í trúarskoðunum og siðum sínum. Hin nýjatrú mun veita ótakmarkaö svigrúm fyrir framför og þroska; hún mun hafna öllum takmörkum ætta, kynflokka og þjóöartrúarbragöa. Iiún er ekki bundin viö neina kenningu, trúarjátningu, bók eöa

x

Heimir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimir
https://timarit.is/publication/440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.