Heimir - 01.09.1910, Blaðsíða 20

Heimir - 01.09.1910, Blaðsíða 20
i6 HEIMIR framleiðsluöfl jaröarinnar, seui alt líf oj; framför mannanna byggist á. Afleiöingin verður því að þessara uðfélagsheildir verða óeðlileg æxli á þjóðarlíkatnanum, sem draga til sín efni þau, sem hinir eðlilegu hlutar hans þyrftu að notasértil viðhalds, og til þess að geta unnið tneð heilbrigöu afli. Það verður því í réttum hlutföllum hvað við annað, að þvt tneira sem æxlin vaxa. * því meiri rýrnun kemur í hina eðlilegu heildarparta. En af því að þessi auðsafns æxli lifa og þroskast ekki lengur, en meöan þau geta dregið til sín iífsvökva frá hinum eðiilegu heildarpörturn, þá hljóta þau einnig að visna upp og hverfa úr sinni mynd. Þetta eigingjarna mannlega afl, verður því afl eyðileggingarinnar, þið eyðileggur sjálft sig um leiö og heildtirhlutarnir, setn það lifði af, eyðilögðust. Næst vil ég þá athuga hvaða áhrif þetta eigingjarna af', þessi þjóðfélags æxli, hefur á manngildi einstaklinganna í báðutn flokkum. Ég vil þá fyrst taka það frain, að það getur enginn maður sýnt hæfilegleika sína í sannri mynd í þjóðlífinu, nema hann sé frjáls, og hafi þá stöðu. sem hans sérstöku hæfilegleikar koma að notum, og eru viðurkendir í ; því þá ræktar hann þá af öllum kröftum, þá styður hann aðra og aðrir styðja hann, og þá getur kærleiksaflið unnið. Og að þetta sé eðlislögmál náttúr- unnar sannast með því að mennirnir eru rnisjafnlega bygðir, og þar afleiðandi hafa mismunandi hæfilegleika. Einn erhneigður fyrir þennan starfa,og annar fyrir hinn, og svona mætti lelja upp háar tölur. Þetta sannar sömuleiðis, að mennirnir eru allir sameiginleg lífsheild, ]>ar sem h\er og einn á aö gjöra sinnskerf » til að fullkomna, Til þess að maður geti kallast frjáls, verður hann að hafa rétt til að afla sér lífsviðurhalds úr framleiðslu öflum náttúrunnar. En þegar afl eigingirninnar er búið að ná m völdunum, er þetta frelsi horfið, eins og áður er sagt. Maðurinn skrælnar því smámsaman upp og manngildið hverfur, í fljótu bragði skoðað, mundi mega ætia, að inanngildi þeirra, sem mynda þann flokkinn,sem valdið hefur, frelsið, auðinn og allar líkamlegar nægtir, mundi stækka og þroskast í sömu hlutföllum sem það rýrnar hjá þeim undirokuðu. En við nánari aðgæzlu komustum við að gagnstæðri niðurstöðu, og orsökin til þess er, að þessir

x

Heimir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimir
https://timarit.is/publication/440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.