Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1920, Blaðsíða 54
[IÐUNN
Sóttarflutningur
af völdum heilbrigðra manna.
Eftir
Ól. Ó. Lárusson lækni.
Gerlafræðin er tiltölulega mjög ung vísindagrein.
L. Pasteur (1822—1895) hefir verið talinn faðir
hennar. Hann færði sönnur á, að ýmsar smáverur,
ósýnilegar berum augum, orsaka sóttir. Þessar verur
köllum vér sóttkveikjur; eru þær bæði jurta og dýra-
kyns. Þessi kenning Pasteur’s hefir orðið mannkyn-
inu heilladrjúg, því með henni voru höggin skörð í
dauðaljáinn, þar sem hann hafði áður llugbitið. Vald
drepsótta er síðan hverfandi lítið, samanborið við
það, sem áður var.
Auk Pasteur’s hafa margir framúrskarandi vísinda-
menn starfað á þessu sviði og lagt drjúgt af mörk-
um til framfaranna. Einkum hafa Þjóðverjar eignast
ýmsa snillinga á þessu sviði, en mestan má telja R.
Koch, sem fann berklastafinn 1882 og kólerustaíinn
1884. Hann vandi sóttkveikjur á fast viðurværi, gerði
þar með einangrun hverrar sóltkveikjulegundar auð-
velda, sem og tilraunir með hana og verkanir hennar
á dýrum.
Franska þjóðin heíir reist Pasteur-stofnun í París,
Þjóðverjar Koch-stofnun í Berlín. Rannsaka þær alt,
sem að sóttvörnum lýtur. Lærisveinar meistaranna
starfa enn við þær.
Mikill vöxtur hljóp í þessa vísindagrein undir lok
síðustu aldar, og má hann nú heita óhemju mikill-
Miklar framfarir, sem þá urðu í eðlisfræði og efna-