Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1925, Blaðsíða 30
24
Sigurður Guðmundsson:
IÐUNN
tími er til íhugunar. Hjer þarf ratvísi að hvers manns
hvötum og hvers manns hjarta, þess næmleiks, er finnur
óðara, ósjálfrátt og óafvitandi, þá aðferð, er heillavæn-
legast orkar á hvern þann, er stýra skal eða hafa áhrif
á. Um Lloyd George segir, í skarpvíslegri) lýsingu á
honum, að hann sje sem miðill næmur fyrir öllum og
öllu, er sje eða gerist í návist hans. Það sje, sem hon-
um gefin sjeu sex eða sjö skiiningarvit, er hann skynji
með hvatir manna og þeim óafvitandi hugar-hræringar.
Þessum næmleik verða allir foringjar, að einhverju leyti,
gæddir vera, hvort sem þeir stýra stjórnmálaflokki eða
barnaskóla. An slíks verður stjórn þeirra að einhverju
ábótavant.
„Fornjósnaraugu
þurfu fira synir,
hvars skulu vreiðir vegast".
segir í Sigrdrífumálum. En þeirra gerist oftar þörf. Þótt
varast skyldu stjórnendur njósnir, nema ef ískyggilega
stendur á, koma fornjósnarfæri sjer vel í umsjón, stjórn
og allri leiðsögu. Nú skilst, hversu næmleikur Hermanns
studdi hann við stýri og í leiðtogasæti. Þetta fornjósnar-
færi olli því, að ekki var auðleikið á hann nje auðfarið
í kringum hann. Því fór saman í honum, sem sjaldgæft
er, að hann var hverjum manni vandaðri, en kunni þó
manna best að sjá við hvers konar undirhyggju. Mætti
segja dæmi þessa hæfileika hans, en yrði of langt. Þessi
næmleikur vísaði honum á vöðin yfir þá köldukvísl, er
með misstríðum straumi líður um hvers manns huglönd.
Því varð hann leikinn í tornuminni list, er fáum lærist
til hlítar, en hvergi veltur meir á en í alvarlegri skóla-
stjórn: að beita hreinskilni á þann hátt, að hún móðgi
ekki nje meiði, heldur að notum komi þeim, er þarfnast
leiðbeiningar í viðkvæmum efnum eða leiðrjettingar á