Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1926, Page 69
IÐUNN
Alþjóðabandalagið.
147
meðferðar mál þau, sem liggja fyrir. Ársþingið hefst
hvert sinn með umræðum um starfsskýrslur ráðsins, og
um starfsskýrslur hinnar sístarfandi skrifstofu yfir það,
sem gerst hefir á fundum ráðsins og á skrifstofunni
liðna árið. Þegar þessum umræðum er lokið, skiftir árs-
þingið málum þeim, sem á dagsskrá eru í það sinn,
milli ýmsra fastra nefnda, sem fara með peningamál,
samgöngumál, heilbrigðismál, mentamál, afvopnun o. fl.
Ráðið. í fyrstu var ætlast til að 5 stórveldi skyldu
eiga ótímabundin sæti í ráðinu: England, Frakkland,
Ítalía, Japan og Bandaríkin, en 4 önnur ríki ættu sæti
í því til skiftis. Þar sem nú Bandaríkin ekki gengu í
Alþjóðabandalagið, varð tala fastra meðlima aðeins 4,
en tala þeirra meðlima, er eiga sæti í ráðinu til skiftis,
var hækkuð upp í 6 árið 1922. Það hefir verið fundið
talsvert að skipun ráðsins og einkum að því, að áður-
nefnd stórveldi skuli hafa föst sæti án þess að því verði
breytt. Eins hefir verið fundið að því, að ríkjunum hafi
ekki verið gefið tækifæri til að skiftast á um þau 6
sæti, sem ekki eru fast ákveðin. Þegar nú Þýskaland
gengur í bandalagið, verður tala fastra meðlima 5, en
gangi t. d. Bandaríkin og Rússland einnig í það, munu
þessi ríki krefjast fastra sæta í ráðinu, og búast má við
að mörg ríki krefjist þess, að tala þeirra meðlima, er
skifta eiga tímabundnum sætum milli sín, verði aukin
að sama skapi. Eins og kunnugt er, átti Þýskaland að
ganga í bandalagið fyrir skömmu síðan, en úr þessu
varð ekki vegna mótspyrnu Brasiliu, sem krafðist tíma-
bundins sætis í ráðinu. Ráðið heldur með sjer fundi
þegar ástæða þykir til og eitthvert mikilsvarðandi mál
ber að höndum, enda of umsvifamikið að samankalla
alla meðlimina nema einu sinni á ári.