Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1929, Blaðsíða 106
296
Nýr rithöfundur.
IÐUNN
er látinn segja söguna, þar til yfir lýkur. í raun og veru
er hann tákn hins ókunna hermanns, er venjulega
nefndur í fyrstu persónu, en höfundur hefir valið hon-
um nafnið Páll(Paul),
og verður því haldið
hér til hægðarauka.
Bókin er fyrst og
fremst »dramatisk«
skáldsaga. En hún
dregur eigi að síður
upp gleggstu, eðli-
legustu og sennileg-
ustu mynd af víg-
stöðvalífinu, sem
nokkurt skáld mun
enn þá hafa skapað,
enda er ekkert trú-
legra en bókin sé
að einhverju leyti
Erich Maria Remarque. byggð á minnisgrein-
um höfundar sjálfs
eða annara. Hún á að því leyti sammerkt við Njálu, að
hún opnar fyrir lesanda heilan heim, og geymir sígild
skáldleg sannindi, sem hver hugsandi maður hlýtur að
kannast við úr sínu eigin lífi.
Markmið höfundar er að leiða mönnum fyrir sjónir
baráttu hins óharðnaða nýliða við ógnir ófriðarins, skot-
hríðir, eiturgas, hvers kyns magnaðar mannlegar ástríður,
lúsina, sem leggst á hermennina, rotturnar, sem leggjast
á náinn.
Frá öllu þessu er sagt með karlmannlegu hispurs-
leysi, en jafnframt með þeirri prúðmennsku, sem að
sjálfsögðu er eitt höfuðeinkenni menntaðra rithöfunda.