Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1929, Blaðsíða 129
IÐUNN
Bækur 1928.
319
Theodór Friðriksson þekkir sinn tíma betur en margir aðrir
íslenzkir rithöfundar, sem enn þá virðast lifa og hrærast aftur í
19. öldinni. Skynjanir hans eru opnar fyrir átökum þeim, er valda
braki og brestum í máttarviðum þjóðfélaganna nú á tímum. Samúð
hans er með undirstéttunum, þótl honum hins vegar vaxi stundum
allmjög í augum það, sem hann finnur á fátt í fari þeirra. Theodór
hefir ýms þau skilyrði, er hefðu getað stutt að því að gera hann
að skáldi hinnar vaknandi verklýðshreyfingar hér á landi. Enginn
þekkir betur en hann kjör og hugsunarhátt sjómanna og verka-
manna. En hreyfingin er ung, og hann var af léltasta skeiði, er
nokkuð verulega tók að bóla á henni. Það er því engin von til
að hann fái unnið hér svipað verk og þeir hafa unnið — Ander-
sen Nexö í Danmörku og Johan Falkberget og Kristofer Uppdal í
Noregi.
Af smásögum hefir komið mesti mýgrútur á árinu. Skulu hér
taldar þær, sem Iðunni hafa borist, og verður þeim raðað án alls
manngreinarálils:
Einar Þorkelsson: Hagalagðar (Rvík, Prentsmiðjan Acta).
Axel Thorsteinsson: í leikslok (Rvík, Prentsmiðjan Acta).
Friðrik Ásmundsson Brekkan: Nágrannar (Akureyri, bóka-
verzlun Þorst. M. Jónssonar).
Gunnar /VI. Magnúss: Fiðrildi (Rvík, Bókaverzl. Guðm. Gam-
alíelssonar).
J. Magnús Biarnason: Haustkvöld við hafið (Rvík, Bókav. Ar-
sæls Arnasonar).
Jón Sveinsson: A Skipalóni (Rvík, Bókav. Arsæls Arnasonar).
Einar Þorkelsson er að að ýmsu leyti geðþekkur rithöfundur.
Hann hefir valið sér það góða hlutskifti að gerast talsmaður mál-
'eysingja og annara smælingja. Það, sem hann skrifar, andar sam-
Öð til alls lifandi.
Ymsir ritdómarar hafa verið ærið önugir í garð Einars upp á
siðkastið. Vilja þeir út af lífinu telja bækur hans lil skáldrita og
rembast síðan í kút og kvartil við að sanna, að hann sé ekki
sliáld. En höf. hefir sjálfur lýst yfir því, að hann telji ekki frá-
sagnir sínar til listaverka. „Þær eru minningar. Og ég hygg, að
mér sé frjálst að segja minningar mínar með þeim hætti, er hendi
verður næstur". Hvers vegna ekki að hlíta þessum úrskurði, í stað
tess að berjast við skugga?