Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1934, Blaðsíða 64
'58
Mannúðin, í Vcsturhcimi.
IÐUNN
náðst í þessari svívirðu. í New York ríki. F>ar er fangi,
sem vinnur fyrir 11/2 œnti á dag, sektaður ura 5 dollara
í hvert skifti, sem út af ber.
En fangar fá önnur laun, og þau eru einsdæmi. Föng-
um, sem afkasta mestu og beztu verki, er neitad um
lögboðnar hvíldarstundir. Hraðvirkir fangar eru böðlum
:sínum mikils virði af tvennum ástæðum: Þeir afkasta
mikiu og peir setja met, og því er þeim neitað um leyfi
til að viðra sig, jafnvel þegar þeim er ætlað leyfi lögum
samkvæmt.
Howard B. Bill, gæzlumaður Ríkisfangelsisins State
Prison Colony í Norfolk í Massachusetts, hefir nýlega
sagt: Síðustu 150 árin hefir stjórnendum fanganna í
Vesturheimi alveg láðst að siðbæta fangana, en í staíð
þess hefir þeim tekist að gera þá sér að féþúfu.
En Iæra þá ekki fangarnir að vinna? Nei, því er nú
ver. Klæðagerð er til dæmis algengasta fangavinna, en
utan fangelsa er hún 'næstum eingöngu kvennavinna..
Þess vegna getur maður saumað skyrtur í 20 ár í fang-
■elsi án þess að hafa lært þar neitt, sem kemur honum
að haldi, þegar hann loks er sloppinn út.
Enda þótt það virðist ‘efst á baugi í öílum ríkjum
Bandaríkjanna að gera fanga að ánauðugum þrælum
•og féþúfu, og enda þótt alt refsikerfið sé þegar af þeirri
•ástæðu svívirðilegt, þá tekur þó út yfir allan þjófabálk
aðbúnaður og meðferð þeirra fanga, sem vinna i hlekkj-
um í Suðurríkjum Bandaríkjanna. Þar nær þrælkunini
hámarki sínu, til ávinnings fyrir einstaka menn og ríkin
sjálf. Georgíu-ríki eitt lét 'sér sæma að græða 3 270 000
•dollara á hlekkjaföngum þess ríkis á einum fjórum
síðast liðnum árum! Þar eru hiekkirnir þjóðlegt og
sögulegt tákn. Á sínum tíma voru þeir til ógnunar
isvertingjum, sem hvítir menn gerðu að þrælum sínum