Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1934, Blaðsíða 166
'160
Bækur.
IÐUNN
islóðarinnar fengið rúm, en hefðu pó mátt vera fleiri.
Þórir Bergsson og Halldór Stefánsson hefðu báðir átt
.að eiga þar sæti. Þeir eru fastmótaðir rithöfundar og
•hafa skrifað ágætar smásögur, sem hefðu sómt sér vel í
pessu safni. Sögur Axels Thorsteinssonar frá vígstöðvun-
ium eru nokkuð sérstæðar í íslenzkum bókmentum og sumar
prýðilega sagðar. Það hefði aukið fjölbreytnina í efnisvali
. að taka eina peirra með i petta safn.
Islenzkir höfundar, sem skrifað hafa á erlendum málum,
hafa fengið rúm í safninu. Ekki dettur mé'r í hug að finna
. að pví. En hvers vegna er gengið fram hjá Guðmundi
•Kamban? Hann hefir pó skrifað smásögur, gert meira að
pví en t. d. Jóhann Sigurjónsson, og stundum tekist vel.
Og smásögur sínar hefir hann skrifað á íslenzku, en pað
iær meira en þeir hafa gert, Jóhann og Kristmann Guð-
mundsson — sem líka hefir fengið rúm — að þeim báð-
ium ólöstuðum.
En það má lengi finna að, og engin von til að allir verði
sammála um, hvað hefði átt að taka í slíkt safn og hvað
• ekki. Og þótt maður'hefði kosið að sleppa einhverju og
taka annað í staðinn, þá verður ekki annað sagt en að
. smásagnasafn þetta sé hin eigulegasta bók. A. H.
Leiðrétting. I talsverðum hluta upplagsins hafa fallið burt
í prentun orðin „lagaðar til“ aftast í l.Hnu neðanmálsgrein-
.ar á bls. 124.
P eir kaupendur Iðunnar úti urn land, sem fd ritið
beint frd afgreiðslunni, eru vinsamlegast beðnir aö senda
:greiðslu fgrir árið í póstávisun. Gjald fyrir 7 króna
ávlsun er að eins 16 aurar, en póstkrafa fyrir sömu
■ upphœð er meira en tvöfalt dýrari, auk peirra vanheimtna,
.sem jafnan verða á póstkröfunum. — Iðunn hefir engan
fjárhagslegan bakhjarl annan en skilvlsi kaupenda sinrta.