Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1934, Blaðsíða 49
IÐUNN Nútíðarbókmentir Bandarikjamanna. 207
Í3ri sinu stóð hann svo að segja eingöngu i sambandi
við þann þátt íslenzks lyndis og íslenzkrar lífsskoðunar,
Sem ber á sér blæ heilbrigði og bjartsýni, en hann
studdi og styrkti sína heimnafengnu og sér náttúrlegu
lífsskoðun — um gróandi þjóðlif með þverrandi tár —
nieð jákvæðum og uppörvandi niðurstöðum erlendra
vísindamanna og skálda.
bað væri bæði skemtilegt og þarflegt, að einhver þeirra
manna, sem bezt eru til þess færir, sýndu stuttlega,
en skýrt og skilmerkilega fram á, að einmitt fyrir
erlend áhrif hafa íslenzkar bókmentir þróast, ýmist
þannig, að íslenzk þjóðmenning hefir komist í varn-
araðstöðu, eins og þegar Snorri skrifaði Eddu, eða
hinir erlendu straumar hafa vakið íslenzka gáfumenn
t’l vitundar um nýja möguleika máls og forms, svo
sem á dögum Jónasar og nú aftur á allra síðustu
árum.
2.
Menn munu yfirleitt gera sér nokkra grein fyrir
Þvi, hve hin ytri viðhorf hafa breyzt hér eins og
annars staðar nú upp á síðkastið. En eins og ég hefi
drepið á, mun hitt ekki vera eins Ijóst þorra manna,
að um leið verða hin andlegu viðhorf óumflýjanlega
að breytast að meira og minna leyti.
I erlendum bókmentum er breytingin greinileg.
Bseði efni þeirra og form er mjög á annan veg en
aður hefir verið. Það, sem mér virðist bera mest á
°g stinga greinilegast í stúf við það gamla, það er,
hve skáldin yfirleitt láta sig jöfnum höndum skifta
h*nn innri og ytri veruleika. Bókmentirnar nýjustu
era andlegri en hin gamla rómantik, af því að ær
*aka sér til aðstoðar vísindin við skoðun sálarlifsins